Hvað þýðir orðasambandið að hafa mikið dálæti á?Orðið dálæti er einkum notað í sambandinu að hafa dálæti á einhverjum ‘þykja vænt um einhvern, meta einhvern mikils’. Dá- er forliður sem getur verið bæði jákvæðrar og neikvæðrar merkingar. Í jákvæðri merkingu er hann til dæmis í lýsingarorðinu dágóður ‘einkar góður, allgóður’, nafnorðinu dálæti og sögninni að dásama ‘lofa, vegsama’. Þá má benda á skyldleika við sögnina að dá ‘vera hrifinn af, vegsama, hrósa’. Í neikvæðri merkingu má nefna lýsingarorðið dálegur ‘illur, vesæll’ (Ásgeir Blöndal Magnússon, 1989:103). Læti hefur fleiri en eina merkingu: ‘hegðun, framferði, látæði; hávaði, ólæti’ (Íslensk orðabók, 2002:944). Vel má hugsa sér að með dálæti á einhverjum sé átt við að kunna að meta hegðun eða framferði einhvers. Heimildir og mynd:
- Ásgeir Blöndal Magnússon. 1989. Íslensk orðsifjabók. Orðabók Háskólans, Reykjavík. https://ordsifjabok.arnastofnun.is
- Íslensk orðabók. 2002. A-L. Ritstjóri Mörður Árnason. Edda, Reykjavík.
- Possability: Disability News & Updates - 2026. (Sótt 7.04.2026). Myndin er birt undir CC-leyfi.