Sólin Sólin Rís 05:49 • sest 21:08 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 05:20 • Sest 22:17 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:06 • Síðdegis: 18:26 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:04 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Skiptir einhverju máli hvort viðræður Íslands við ESB byrja upp á nýtt eða fyrri viðræðum er haldið áfram?

Margrét Einarsdóttir

Einfalda svarið við þeirri spurningu er að ef viðræður eru hafnar að nýju þurfa öll aðildarríkin að samþykkja Ísland sem ríki til aðildarviðræðna. Það ferli getur tekur nokkurn tíma. Ef viðræðum er haldið áfram hefur Ísland þegar hlotið samþykki allra aðildarríka ESB til viðræðna.

Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu þann 16. júlí 2009 og tæplega ári síðar, þann 17. júní, samþykkti ráðið formlega að hefja aðildarviðræður við Ísland. Þörf er á einróma samþykki allra aðildarríkja Sambandsins fyrir töku slíkrar ákvörðunar, að höfðu samráði við framkvæmdastjórn ESB og að fengnu samþykki Evrópuþingsins, sbr. 49. gr. sáttmálans um ESB

Frá því að þáverandi íslensk stjórnvöld ákváðu árið 2013 að fresta/hætta aðildarviðræðum við ESB hafa verið uppi vangaveltur um hvort aðildarviðræðunum hafi einungis verið frestað eða umsóknin formlega afturkölluð. Nú hefur komið í ljós að afstaða framkvæmdastjórnar ESB er sú að viðræðunum hafi einungis verið frestað.[1] Þetta þýðir að ef þjóðin velur í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu að halda viðræðum um aðild Íslands áfram verður ekki þörf á að endurtaka það ferli sem felst í fyrrgreindri 49. gr. sáttmálans um ESB.

Tilvísun:
  1. ^ Sjá t.d. hér: HRVP Kaja Kallas and Maroš Šefčovič Met with the Icelandic Minister for Foreign Affairs, Thorgerdur Katrin Gunnarsdottir, in Brussels. - EEAS. (Sótt 16.04.2026). Og líka hér: The EU says Iceland’s application is still valid before the August 29 vote - NordiskPost. (Sótt 16.04.2026).

Mynd:

Yfirgripsmikilli spurningu Daníels Páls er hér svarað að hluta.

Höfundur

Margrét Einarsdóttir

prófessor við lagadeild HR

Útgáfudagur

17.4.2026

Spyrjandi

Daníel Páll Kjartansson

Tilvísun

Margrét Einarsdóttir. „Skiptir einhverju máli hvort viðræður Íslands við ESB byrja upp á nýtt eða fyrri viðræðum er haldið áfram?“ Vísindavefurinn, 17. apríl 2026, sótt 17. apríl 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88600.

Margrét Einarsdóttir. (2026, 17. apríl). Skiptir einhverju máli hvort viðræður Íslands við ESB byrja upp á nýtt eða fyrri viðræðum er haldið áfram? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88600

Margrét Einarsdóttir. „Skiptir einhverju máli hvort viðræður Íslands við ESB byrja upp á nýtt eða fyrri viðræðum er haldið áfram?“ Vísindavefurinn. 17. apr. 2026. Vefsíða. 17. apr. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88600>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Skiptir einhverju máli hvort viðræður Íslands við ESB byrja upp á nýtt eða fyrri viðræðum er haldið áfram?
Einfalda svarið við þeirri spurningu er að ef viðræður eru hafnar að nýju þurfa öll aðildarríkin að samþykkja Ísland sem ríki til aðildarviðræðna. Það ferli getur tekur nokkurn tíma. Ef viðræðum er haldið áfram hefur Ísland þegar hlotið samþykki allra aðildarríka ESB til viðræðna.

Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu þann 16. júlí 2009 og tæplega ári síðar, þann 17. júní, samþykkti ráðið formlega að hefja aðildarviðræður við Ísland. Þörf er á einróma samþykki allra aðildarríkja Sambandsins fyrir töku slíkrar ákvörðunar, að höfðu samráði við framkvæmdastjórn ESB og að fengnu samþykki Evrópuþingsins, sbr. 49. gr. sáttmálans um ESB

Frá því að þáverandi íslensk stjórnvöld ákváðu árið 2013 að fresta/hætta aðildarviðræðum við ESB hafa verið uppi vangaveltur um hvort aðildarviðræðunum hafi einungis verið frestað eða umsóknin formlega afturkölluð. Nú hefur komið í ljós að afstaða framkvæmdastjórnar ESB er sú að viðræðunum hafi einungis verið frestað.[1] Þetta þýðir að ef þjóðin velur í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu að halda viðræðum um aðild Íslands áfram verður ekki þörf á að endurtaka það ferli sem felst í fyrrgreindri 49. gr. sáttmálans um ESB.

Tilvísun:
  1. ^ Sjá t.d. hér: HRVP Kaja Kallas and Maroš Šefčovič Met with the Icelandic Minister for Foreign Affairs, Thorgerdur Katrin Gunnarsdottir, in Brussels. - EEAS. (Sótt 16.04.2026). Og líka hér: The EU says Iceland’s application is still valid before the August 29 vote - NordiskPost. (Sótt 16.04.2026).

Mynd:

Yfirgripsmikilli spurningu Daníels Páls er hér svarað að hluta....