Sólin Sólin Rís 10:12 • sest 16:14 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:02 • Sest 03:38 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:45 • Síðdegis: 15:04 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:00 • Síðdegis: 21:24 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Af hverju er sagt að einhver sé hryggbrotinn ef bónorði hans er hafnað?

Guðrún Kvaran

Í fornum íslenskum textum má sjá að ekkert gamanmál var að hryggbrotna til dæmis í orrustu. Því er ekki langt í yfirfærðu merkinguna að vera hafnað við bónorð. Elst dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans um hryggbrot er úr riti Magnúsar Stephensen Skemmtileg vinagleði frá 1797:

Hriggbroti er eg annars ordinn […] vanur því piltanir segia eg bidli til bísna margra.

Ekki finn ég dæmi úr nágrannamálum þar sem hryggur kemur við sögu. Í dönsku er notað at få kurv(en) ef biðli er hafnað. Í þýsku er sagt jemandem einen Korb geben ef hann fær neitun við bónorð en bæði orðin kurv og Korb merkja ‘karfa’.

Heimildir og mynd:

Upphaflega var spurningin svona:
Er orðatiltæki "að vera hryggbrotin" í merkingunni að bónorði manns hafi verið hafnað þekkt í öðrum tungumálum?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

20.11.2026

Spyrjandi

Nína Þórsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju er sagt að einhver sé hryggbrotinn ef bónorði hans er hafnað?“ Vísindavefurinn, 20. nóvember 2026, sótt 20. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88725.

Guðrún Kvaran. (2026, 20. nóvember). Af hverju er sagt að einhver sé hryggbrotinn ef bónorði hans er hafnað? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88725

Guðrún Kvaran. „Af hverju er sagt að einhver sé hryggbrotinn ef bónorði hans er hafnað?“ Vísindavefurinn. 20. nóv. 2026. Vefsíða. 20. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88725>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...