Sólin Sólin Rís 08:09 • sest 18:18 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 11:41 • Sest 17:16 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:05 • Síðdegis: 19:18 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:55 • Síðdegis: 13:17 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Er rafsegulmengun í rafbílum?

Ari Ólafsson

Stutta svarið er já, en hún er okkur ekki hættuleg.

Eins og í öllum öðrum farartækjum sem innihalda rafkerfi, myndast rafsegulsvið við notkun rafbíla. Nútíma bílar eru búnir Bluetooth-samskiptabylgjum, fjarstýringum á fjölmörgum hlutum, svo sem hurðalæsingum og vélarræsingu. Bylgjur frá þessum búnaði verða að flokkast sem mengun, þrátt fyrir notagildið. Neisti sem kveikir í eldsneytisblöndu bensínhreyfla sendir frá sér útvarpsbylgjur og svo framvegis.

Rafbílar mynda lágtíðni segulsvið umfram aðrar tegundir farartækja vegna kröftugri rafstrauma til og frá rafhlöðunum. En segulsviðið fellur hratt í styrk með aukinni fjarlægð. Við finnum mengun af sömu ætt við eldavélina. Þar renna sterkustu rafstraumar sem notaðir eru á heimilum. Segulsvið í grennd við rafleiðara er í réttu hlutfalli við straumstyrkinn í leiðaranum. Hraðhleðsla, snögg hröðun (hraðaaukning) og endurvinnsla orku við hemlun eru þeir atburðir sem tengjast sterkustu rafstraumunum og þar með hæstu segulsviði.

Eins og í öllum öðrum farartækjum sem innihalda rafkerfi, myndast rafsegulsvið við notkun rafbíla. Eftirlitsstofnanir margra landa fylgjast náið með styrk segulmengunar í rafbílum og eru samróma um að hún sé langt undir hættumörkum.

Alþjóðlega stofnunin International Commission on Non-Ionizing Radiation Protection (ICNIRP) setur reglur um leyfilegan hámarksstyrk lágtíðni rafsegulsviðs í umhverfi okkar, sem telst hættulaus. Eftirlitsstofnanir margra landa fylgjast náið með styrk segulmengunar í rafbílum og eru samróma um að hún sé langt undir hættumörkum.

Myndir:

Höfundur

Ari Ólafsson

dósent emeritus í eðlisfræði við HÍ

Útgáfudagur

12.10.2026

Spyrjandi

Hróar Pálsson

Tilvísun

Ari Ólafsson. „Er rafsegulmengun í rafbílum?“ Vísindavefurinn, 12. október 2026, sótt 12. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89233.

Ari Ólafsson. (2026, 12. október). Er rafsegulmengun í rafbílum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89233

Ari Ólafsson. „Er rafsegulmengun í rafbílum?“ Vísindavefurinn. 12. okt. 2026. Vefsíða. 12. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89233>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Myndir:...