Sólin Sólin Rís 07:10 • sest 19:29 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 19:18 • Sest 00:09 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:45 • Síðdegis: 16:10 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:55 • Síðdegis: 22:31 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvernig eru jökulhlaup flokkuð eftir eiginleikum?

Magnús Tumi Guðmundsson og Guðrún Larsen

Jökulhlaup eru af ýmsum gerðum. Rennsli og heildarrúmmál þeirra spannar margar stærðargráður. Flest bera þau með sér framburð í einhverjum mæli, gosefni og ýmiss konar bergmylsnu. Algengt er að fastefni sé aðeins lítill hluti þess sem flæðir fram, en hitt er einnig til, að verulegur hluti sé set. Það getur til dæmis átt við um eldgos undir jökli, þegar mikill hluti gosefna berst með hlaupvatni. Einnig þegar hlaup fer niður brattar hlíðar þar sem fyrir er laus jarðvegur eða setbingir. Hlutfall fastefnis og vatns ræður einnig gerð hlaups. Sé vatn langstærsti hluti rúmmálsins, rennur hlaupið fram með iðustreymi og boðaföllum.

Með auknu fastefni verður vökvinn eðlisþyngri og seigari. Slík hlaup eru nefnd aurflóð. Þegar fastefni verður mjög mikið, getur aurinn hindrað iðustreymi og hlaupið flætt eins og þykkur grautur. Verði hlutfall fastefnis miklu meira en helmingur rúmmáls, getur hann flætt eins og seigur vökvi meðan halli er umtalsverður. Hlaup af því tagi eru nefnd grjótflóð. Þegar kemur niður á sléttlendi, skilst hluti fastefnisins frá, hlaupið verður að aurflóði og endar að lokum sem vatnsflóð. Í töflunni hér fyrir neðan er yfirlit yfir flokkun hlaupa eftir fastefnisinnihaldi.

Flokkun flóða út frá hlutfalli vatns og fastefnis

Vatnsflóð <20% rúmmáls fastefni
Aurflóð fastefni á bilinu 20–60% rúmmáls
Grjótflóð fastefni > 60% rúmmáls

Bratti ræður töluverðu um framrásarhraða og ofsa jökulhlaups. Hlaup sem fara niður brattar hlíðar eru eðlilega sneggri en þau sem fara um sléttara land. Farvegur Kötluhlaupa frá upptökum er til dæmis mun brattari en leið Grímsvatnahlaupa og Skaftárhlaupa.

Flest jökulhlaup á Íslandi eru vatnsflóð. Þó er talið að sum Kötluhlaup, að minnsta kosti fyrst eftir að þau koma undan jökli, geti hafa verið aurflóð, og líklegt er að það gildi einnig um hlaup eftir gos í Öræfajökli. Í Eyjafjallajökulsgosinu 2010 kom aurflóð niður Gígjökul 25. apríl, og nokkur minni niður Svaðbælisá. Eftir stórrigningu á jöklinum þann 19. maí kom mikið eðjuflóð niður Svaðbælisá. Lýsti Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri því þannig, að er hann dýfði hönd í það, var það líkt blautri steinsteypu.[1]

Tilvísun:
  1. ^ Guðrún Sverrisdóttir. Umfjöllun hennar um flóðið á vefsíðu Jarðvísindastofnunar H.Í. 2010.

Yfirlitsmynd:

Þetta svar er úr bókinni Náttúruvá á Íslandi: Eldgos og jarðskjálftar (2013) og birt með góðfúslegu leyfi. Það er lítillega aðlagað Vísindavefnum.

Höfundar

Magnús Tumi Guðmundsson

prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ

Guðrún Larsen

jarðfræðingur á Jarðvísindastofnun HÍ

Útgáfudagur

22.9.2026

Spyrjandi

Andrea

Tilvísun

Magnús Tumi Guðmundsson og Guðrún Larsen. „Hvernig eru jökulhlaup flokkuð eftir eiginleikum?“ Vísindavefurinn, 22. september 2026, sótt 22. september 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89718.

Magnús Tumi Guðmundsson og Guðrún Larsen. (2026, 22. september). Hvernig eru jökulhlaup flokkuð eftir eiginleikum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89718

Magnús Tumi Guðmundsson og Guðrún Larsen. „Hvernig eru jökulhlaup flokkuð eftir eiginleikum?“ Vísindavefurinn. 22. sep. 2026. Vefsíða. 22. sep. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89718>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvernig eru jökulhlaup flokkuð eftir eiginleikum?
Jökulhlaup eru af ýmsum gerðum. Rennsli og heildarrúmmál þeirra spannar margar stærðargráður. Flest bera þau með sér framburð í einhverjum mæli, gosefni og ýmiss konar bergmylsnu. Algengt er að fastefni sé aðeins lítill hluti þess sem flæðir fram, en hitt er einnig til, að verulegur hluti sé set. Það getur til dæmis átt við um eldgos undir jökli, þegar mikill hluti gosefna berst með hlaupvatni. Einnig þegar hlaup fer niður brattar hlíðar þar sem fyrir er laus jarðvegur eða setbingir. Hlutfall fastefnis og vatns ræður einnig gerð hlaups. Sé vatn langstærsti hluti rúmmálsins, rennur hlaupið fram með iðustreymi og boðaföllum.

Með auknu fastefni verður vökvinn eðlisþyngri og seigari. Slík hlaup eru nefnd aurflóð. Þegar fastefni verður mjög mikið, getur aurinn hindrað iðustreymi og hlaupið flætt eins og þykkur grautur. Verði hlutfall fastefnis miklu meira en helmingur rúmmáls, getur hann flætt eins og seigur vökvi meðan halli er umtalsverður. Hlaup af því tagi eru nefnd grjótflóð. Þegar kemur niður á sléttlendi, skilst hluti fastefnisins frá, hlaupið verður að aurflóði og endar að lokum sem vatnsflóð. Í töflunni hér fyrir neðan er yfirlit yfir flokkun hlaupa eftir fastefnisinnihaldi.

Flokkun flóða út frá hlutfalli vatns og fastefnis

Vatnsflóð <20% rúmmáls fastefni
Aurflóð fastefni á bilinu 20–60% rúmmáls
Grjótflóð fastefni > 60% rúmmáls

Bratti ræður töluverðu um framrásarhraða og ofsa jökulhlaups. Hlaup sem fara niður brattar hlíðar eru eðlilega sneggri en þau sem fara um sléttara land. Farvegur Kötluhlaupa frá upptökum er til dæmis mun brattari en leið Grímsvatnahlaupa og Skaftárhlaupa.

Flest jökulhlaup á Íslandi eru vatnsflóð. Þó er talið að sum Kötluhlaup, að minnsta kosti fyrst eftir að þau koma undan jökli, geti hafa verið aurflóð, og líklegt er að það gildi einnig um hlaup eftir gos í Öræfajökli. Í Eyjafjallajökulsgosinu 2010 kom aurflóð niður Gígjökul 25. apríl, og nokkur minni niður Svaðbælisá. Eftir stórrigningu á jöklinum þann 19. maí kom mikið eðjuflóð niður Svaðbælisá. Lýsti Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri því þannig, að er hann dýfði hönd í það, var það líkt blautri steinsteypu.[1]

Tilvísun:
  1. ^ Guðrún Sverrisdóttir. Umfjöllun hennar um flóðið á vefsíðu Jarðvísindastofnunar H.Í. 2010.

Yfirlitsmynd:

Þetta svar er úr bókinni Náttúruvá á Íslandi: Eldgos og jarðskjálftar (2013) og birt með góðfúslegu leyfi. Það er lítillega aðlagað Vísindavefnum....