Sólin Sólin Rís 10:21 • sest 16:06 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 14:31 • Sest 09:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:58 • Síðdegis: 17:17 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:17 • Síðdegis: 23:29 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver var staða gyðinga á valdatíð múslima á Íberíuskaga?

Þórir Jónsson Hraundal

Gyðingar voru áhrifamikill minnihlutahópur í ríki múslima á Íberíuskaga sem kallaðist Al-Andalus. Í raun höfðu þeir verið á Íberíuskaga frá því löngu áður en bæði múslimar og Vestgotar stigu þar fæti. Fyrstu samfélög þeirra mynduðust á tímum Rómverja sem réðu mestöllum Íberíuskaga frá þriðju öld fyrir Krist til þriðju aldar eftir Krist. Fornleifar og áletranir með hebresku letri benda til þess að gyðingar hafi mögulega verið búnir að koma sér fyrir á Mallorca og Ibiza á fyrstu öld, en örugglega á 3. öld á meginlandinu.

Fyrst eftir að Vestgotar lögðu undir sig skagann snemma á 5. öld skiptu þeir sér ekki mikið af gyðingunum sem þar voru. Líklega höfðu þeir nóg fyrir stafni með andúð sína á Rómaveldi og kaþólskri kristni. Fljótlega upp úr 500 fór þó að bera á tilburðum til að bæla niður gyðingdóm, og undir lok 6. aldar var staðan orðin mjög íþyngjandi fyrir gyðinga.

Þegar múslimar tóku völdin á Spáni árið 711 breyttist líf gyðinga til muna. Þeir virðast hafa fagnað hinum nýju herrum og jafnvel aðstoðað þá við landvinninga sína. Gyðingar sinntu til dæmis vörnum í Cordoba, og blandaðir herir múslima og gyðinga stóðu vörð í Granada, Malaga, Sevilla og Toledo.

Eins og venja var í þeim löndum sem múslimar náðu undir sig var fólki sem þar var fyrir leyft að stunda trú sína gegn því að borga skatt. Samfélög gyðinga í veldi múslima á Spáni nutu þannig ákveðinna réttinda og lífsgæða og með tímanum jókst fjöldi þeirra jafnt og þétt. Þeir sáu tækifæri til að lifa betra lífi í Al-Andalus, sem bauð upp á umburðarlyndara umhverfi en flest önnur veldi á þeim tíma.

Gyðingar urðu með tímanum áberandi á mörgum sviðum þjóðlífsins. Þeir sinntu opinberum embættum, og létu til sín taka í fræðum og listum, sérstaklega á valdatíð kalífans Abd ar-Rahmans III. á 10. öld. Einn af aðalráðgjöfum hans var gyðingur, Hasdai ibn Shaprut. Hasdai þessi var lykilmaður í að búa gyðingum umhverfi til fræða og rannsókna i Cordoba, og var auk þess ötull talsmaður réttinda þeirra víðs vegar um heiminn. Hann þrýsti meðal annars á yfirvöld í Konstantínópel í Austrómverska heimsveldinu (Býsans) að koma vel fram við gyðinga þar, og vísaði þá í góða stöðu kristinna í Al-Andalus undir stjórn múslima.

Einna frægastur gyðinga í Al-Andalus er þó Maimonides, sem stundaði jöfnum höndum guðfræði, stjörnufræði og lækningar. Skrif hans um lög og siðfræði í gyðingdómi öfluðu honum frægðar víða, og hann hafði einnig mikil áhrif á arabíska fræðimenn og kenningasmiði á Spáni. Síðustu ár ævi sinnar var hann leiðtogi samfélags gyðinga í Kaíró á valdatíð Saladins, og var að lokum jarðsettur við strönd Galileuvatns.

Eftir því sem kristnir konungar náðu meiri völdum á Íberíuskaga á 11. og 12. öld fór aftur að harðna í ári hjá gyðingum. Ofsóknir kristinna á hendur þeim jukust þegar leið á 14. öld, og þeir voru víða beittir órétti og ofbeldi. Málverk sem sýnir fjöldamorð gyðinga í Toledo.

Eftir því sem kristnir konungar náðu meiri völdum á Íberíuskaga á 11. og 12. öld fór aftur að harðna í ári hjá gyðingum. Ofsóknir kristinna á hendur þeim jukust þegar leið á 14. öld, og þeir voru víða beittir órétti og ofbeldi, þvingaðir til að taka kristna trú, og margir voru teknir af lífi eða myrtir á götum úti. Stuttu eftir fall Granada 1492 gáfu Ferdinand og Ísabella út tilskipun um að allir gyðingar skyldu á brott úr ríki þeirra: þeir mættu taka með eigur sínar, að frátöldu silfri, gulli og peningum. Frá Spáni dreifðust þessir gyðingar svo víða um Evrópu og Miðjarðarhaf. Gyðingar á Íberíuskaga nefndu hann Sefarad og eru þeir kallaðir Sefardí-gyðingar. Það heiti hefur síðan fylgt gyðingum í Norður-Afríku og við Miðjarðarhafið.

Árið 1924 veitti ríkisstjórn Miguels Primo de Rivera ákveðnum hópi Sefardí-gyðinga spænskan ríkisborgararétt. Sú tilskipun var afturkölluð 16. desember 1968 í kjölfar annars Vatíkanþingsins, af ríkisstjórn Franciscos Franco. Þetta gerðist heilli öld eftir að gyðingar höfðu aftur byrjað opinberlega að iðka trú sína á Spáni og sýnagógur voru aftur löglegir tilbeiðslustaðir samkvæmt lögum Spánar um trúfrelsi.

Árið 2015 samþykktu stjórnvöld á Spáni svo lög sem gerðu það að verkum að afkomendur Sefardí-gyðinga gætu fengið spænskan ríkisborgararétt til að bæta upp fyrir skammarlegt framferði Spánverja gagnvart þeim fyrr á tímum eins og það var orðað. Gyðingar sem gátu sannað að þeir væru afkomendur þeirra sem reknir voru frá Spáni vegna Alhambra-tilskipunarinnar 1492 gátu orðið Spánverjar án þess að fara að heiman eða afsala sér ríkisfangi sínu. Ekkert slíkt var hins vegar í boði fyrir afkomendur múslima sem mættu sömu örlögum og gyðingar á Íberíuskaga í lok miðalda.

Myndir:

Höfundur

Þórir Jónsson Hraundal

lektor í Mið-Austurlandafræðum við HÍ

Útgáfudagur

23.11.2026

Spyrjandi

Valdís, ritstjórn

Tilvísun

Þórir Jónsson Hraundal. „Hver var staða gyðinga á valdatíð múslima á Íberíuskaga?“ Vísindavefurinn, 23. nóvember 2026, sótt 23. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89806.

Þórir Jónsson Hraundal. (2026, 23. nóvember). Hver var staða gyðinga á valdatíð múslima á Íberíuskaga? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89806

Þórir Jónsson Hraundal. „Hver var staða gyðinga á valdatíð múslima á Íberíuskaga?“ Vísindavefurinn. 23. nóv. 2026. Vefsíða. 23. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89806>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Myndir:...