Til eru tvær heimildir um hæð Golíats, hermannsins frá Filistaborginni Gat, sem Davíð konungur felldi með steinslöngvu, þegar hann var aðeins unglingur að aldri, samkvæmt 17. kafla 1. Samúelsbókar.
Golíat er sagður vera „sex og hálf alin á hæð“ í 1. Samúelsbók 17.4 í íslensku biblíuþýðingunni frá 2007. Það jafn...
Ef kjarnorkusprengja springur í geimnum myndast ekki höggbylgja. Í geimnum er ekkert andrúmsloft og agnirnar sem losna við kjarnahvörfin í sprengingunni geta þess vegna ekki rekist á neitt.
Ef kjarnorkusprengja springur í lofthjúpi, eins og er á jörðinni, myndast höggbylgja þegar agnir sem losna með gífurlegum...
Háfjallaveiki er kvilli sem hrjáir fólk sem ferðast of hratt upp í mikla hæð (oftast yfir 2.400 metra), einkum þá sem búa að öllu jöfnu við sjávarmál. Í þessum hópi eru meðal annars fjallgöngumenn, aðrir göngugarpar og skíðamenn.
Orsakir og einkenni
Orsakir háfjallaveiki eru minni loftþrýstingur og lítill...
Stutta svarið er að það eru engin sérstök takmörk á vegalengdinni. Ef við erum úti í geimnum en inni í ljósgeislanum og engin skýjahula er yfir ljósgjafanum sjáum við hann þaðan ýmist með berum augum eða með viðeigandi tækjum. Ef við erum með nógu góð tæki getum við "séð" eða skynjað ljósið býsna langt utan úr gei...
Gosið í Tonga-eyjakasanum í Kyrrahafi þann 15. janúar 2022 er að öllum líkindum kraftmesta gos 21. aldarinnar hingað til. Samkvæmt bráðbirgðamati sérfræðinga sem skoðað hafa málið út frá hitastigi gosmakkarins í heiðhvolfinu reis hann í um 30 km hæð (sjá neðar) og gervitungl sýna að hann varð á stuttum tíma mjög s...
Ef 5 gráðu hitafarslækkun skilaði sér jafnt á öllum árstímum og hitafall með hæð yrði ekki ólíkt því sem nú er mætti fá nokkra hugmynd um hvernig umhorfs væri á láglendi á Íslandi með því að líta til landsvæða sem eru í um 800 metra hæð yfir sjó. Í þeirri hæð er harla lítill gróður, snjór þekur jörð allan veturinn...
Everestfjall er hæsta fjall jarðar, nánar tiltekið 8.850 metrar yfir sjávarmáli. Fjallið tilheyrir Himalajafjallgarðinum en hann er í 6 löndum sem heita: Bútan, Kína, Indland, Nepal, Pakistan og Afganistan.
Myndun fellingafjalla getur orðið með þrennum hætti:
Hafsbotnsskorpa sekkur undir aðra hafsbotnssk...
Í heild hljóðaði spurningin svona:
Þegar Veðurstofan gefur upp dýpi á jarðskjálfta, er þá átt við dýpi frá yfirborði þess landssvæðis þar sem upptök skjálftans eru eða er átt við dýpi miðað við sjávarmál?
Dæmi: Ef jarðskjálfti verður á 0,1 km dýpi undir Bárðarbungu er þá átt við að upptökin séu 100 m undir yfi...
Svarið er já, það geta þeir, ef þeir geta náð sama upphafshraða í stökkinu. Þeir þurfa þó að vera í meiri hæð yfir jörð en hæstu fjöll til að aukin stökkhæð mælist greinilega. Ástæðan fyrir meiri stökkhæð er minna þyngdarsvið sem kallað er, með öðrum orðum minni þyngdarkraftur á hvert kg í massa. Geimfarar geta lí...
Margir þættir hafa áhrif á gróðurfarsskilyrði og þar með gróðurhulu á landinu. Þættir sem hafa neikvæð áhrif á gróðurfarsskilyrði eru meðal annars i) áföll af völdum eldgosa og jökulhlaupa; ii) slæm loftslagsskilyrði til fjalla auk þess sem úrkoma er sums staðar nokkuð takmarkandi; iii) sandur og sandfok á auðnum ...
Einnig hefur verið spurt:Hver eru upprunalegu tré Íslands?
Þegar spurt er um tré er fyrst að skilgreina hvað sé tré, samanborið við til dæmis hvað flokkast sem runni, en munurinn milli trjáa og runna er síður en svo skýr. Tré og runnar eru plöntur með fjölæra, trénaða stöngla, en frá stærstu trjám (til dæmis ri...
Á vef Landmælinga Íslands er að finna eftirfarandi upplýsingar um flatarmál Íslands eftir hæð yfir sjávarmáli.
km2%Allt landið103.000100
0-200 metrar24.70024
201-400 metrar18.40017,9
401-600 metrar22.20021,5
601 metrar og yfir37.70036,6
Eins og taflan sýnir er meira en þriðjungur landsins hærri en 600 ...
Trapisa er ferhyrningur sem hefur tvær hliðar sem eru samsíða. Fjarlægðin á milli samsíða hliðanna tveggja er kölluð hæð trapisunnar. Ef við vitum hæð trapisu og lengd samsíða hliðanna getum við reiknað út flatarmál hennar með einfaldri formúlu: trapisa með hæð h og samsíða hliðar af lengd a og c hefur flatarmálið...
Þó að kettir lendi yfirleitt alltaf á löppunum þegar þeir falla úr einhverri hæð gera þeir það ekki alltaf. Hæfileikinn til að lenda á löppunum er afleiðing af því að kettir hafa mjög góða jafnvægisskynjun og eru mjög liðugir.
Ef ketti er sleppt úr einhverri hæð getur hann um leið skynjað stöðu sína í rúmi. Og ...
Hæsti tindur Aserbaídsjan kallast Bazardüzü Dağı og er í Kákasusfjöllum, rétt við landamæri Aserbaídsjan og Rússlands. Þessi tindur nær upp í 4485 m hæð og er því meira en helmingi hærri en Hvannadalshnjúkur, hæsti tindur Íslands.
Bazardüzü Dağı nær upp í 4485 metra hæð.
Það er ekki gott að s...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!