Sólin Sólin Rís 05:02 • sest 21:51 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:38 • Síðdegis: 23:15 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:35 • Síðdegis: 16:37 í Reykjavík

Hvaðan kemur orðið glundroði og hvað merkja glund og roði í orðinu?

Guðrún Kvaran

Orðið glundroði merkir ‘ruglingur, tætingur, samsull’. Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:259) er uppruni óviss en að upphafleg merking sé hugsanlega ‘glær (þunnur) vökvi’. Fyrri liður samsetningarinnar er þá glundur ‘þunnt mauk, þunnur spónamatur, gutl; ruglingur’. Glundroði sé þá orðið til úr *glundrhroði en Ásgeir merkir það orð með spurningarmerki.

Uppruni orðsins glundroði er óviss en upphafleg merking er hugsanlega ‘glær (þunnur) vökvi’.

Hroði merkir ‘uppgangur, slím í öndunarfærum’ en einnig ‘rusl, óþverri, úrgangur’ (1989: 376). Merkið * er notað til að sýna að orð er endurgert, ágiskun.

Heimild og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

21.10.2022

Spyrjandi

Berglín Hjaltalín, ritstjórn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið glundroði og hvað merkja glund og roði í orðinu?“ Vísindavefurinn, 21. október 2022. Sótt 30. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=84096.

Guðrún Kvaran. (2022, 21. október). Hvaðan kemur orðið glundroði og hvað merkja glund og roði í orðinu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=84096

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið glundroði og hvað merkja glund og roði í orðinu?“ Vísindavefurinn. 21. okt. 2022. Vefsíða. 30. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=84096>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvaðan kemur orðið glundroði og hvað merkja glund og roði í orðinu?
Orðið glundroði merkir ‘ruglingur, tætingur, samsull’. Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:259) er uppruni óviss en að upphafleg merking sé hugsanlega ‘glær (þunnur) vökvi’. Fyrri liður samsetningarinnar er þá glundur ‘þunnt mauk, þunnur spónamatur, gutl; ruglingur’. Glundroði sé þá orðið til úr *glundrhroði en Ásgeir merkir það orð með spurningarmerki.

Uppruni orðsins glundroði er óviss en upphafleg merking er hugsanlega ‘glær (þunnur) vökvi’.

Hroði merkir ‘uppgangur, slím í öndunarfærum’ en einnig ‘rusl, óþverri, úrgangur’ (1989: 376). Merkið * er notað til að sýna að orð er endurgert, ágiskun.

Heimild og mynd:...