Sólin Sólin Rís 08:12 • sest 18:15 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:44 • Sest 16:55 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:37 • Síðdegis: 19:51 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:26 • Síðdegis: 13:51 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað eru fiseindir og hvenær voru þær fyrst uppgötvaðar?

Jón Emil Guðmundsson

Fiseindir (e. neutrinos) teljast til öreinda, en allt efni í alheiminum er samsett úr litlum einingum sem vísindamenn nefna öreindir. Fiseindir eru óhlaðnar agnir með afar lítinn massa. Þær hafa hálftölu spuna og teljast því til fermíeinda. Fiseindir myndast meðal annars við beta-geislun með veikri víxlverkun (e. weak force). Þær eru meðal algengustu öreinda í heiminum en víxlverka þó mjög sjaldan við efni.

Fiseindir voru kynntar til sögunnar af eðlisfræðingum fyrir tæpum 100 árum til þess að útskýra frávik í beta-geislun. Beta-geislun tengist hrörnun í kjörnum atóma og er tegund af geislavirkni. Eðlisfræðingurinn Wolfgang Pauli (1900-1958) lét sér detta í hug tilvist þessara agna en grínaðist með það að hann hefði fundið upp á öreindum sem aldrei yrði hægt að nema. Tilvist þeirra var þó staðfest árið 1956 með því að staðsetja mæla nálægt kjarnakljúfi en þar myndast fiseindir í miklu mæli.

Til að nema fiseindir nota vísindamenn stór mælitæki sem geta greint þær sjaldgæfu víxlverkanir sem eiga sér stað. Ein slík tilraun heitir Super-Kamiokande, mælitæki þeirrar tilraunar sést hér fyrir neðan og líka efst í svarinu.

Super-Kamiokande-mælitækið greinir sjaldgæfar víxlverkanir fiseinda. Mælitækið er risastór stáltankur á þúsund metra dýpi í Kamioka-námunni í Japan. Í tanknum eru 50.000 tonn af vatni sem hefur verið hreinsað sérstaklega til að draga úr geislavirkni.

Í kjarna sólarinnar eiga sér stað kjarnahvörf þar sem fjögur vetnisatóm verða hægt og bítandi að einu helínatómi. Í þessu ferli myndast bæði ljós- og fiseindir. Fiseindirnar sem myndast í þessum kjarnahvörfum skjótast beint út úr sólinni á því sem næst hraða ljóssins og streyma í allar áttir. Jörðin er böðuð í þessum stanslausa straumi fiseinda frá sólinni. Straumurinn er svo mikill að á hverri sekúndu ferðast 100 billjón (1014) fiseindir í gegnum mannslíkamann.

Fiseindir eru allavega milljón sinnum léttari en rafeindir. Við vitum að þær hafa massa en við vitum ekki hve massamiklar þær eru. Margir rannsóknarhópar vinna einmitt að því að svara þessari spurningu í dag. Meðal annars vísindamenn sem vinna með gögn frá Super-Kamiokande.

Samkvæmt hinu viðtekna líkani heimsfræðinnar (e. the standard model of cosmology) eru fiseindir um 0,1–0,5% af heildarorku alheimsins í dag. Óvissubilið kemur til vegna óvissu á heildarmassa fiseinda. Til samanburðar telja stjarneðlisfræðingar að venjulegt efni um sé um 5% af heildarorku alheimsins, hulduefni um 26% og hulduorka um 69%.

Rannsóknir á eðli fiseinda hafa leitt til 5 Nóbelsverðlauna í eðlisfræði. Síðast árið 2026.

Myndir:

Upprunaleg spurning Elísabetar hljóðaði svona:

Hvernig var fiseindin uppgötvuð? (Ath. þetta er ekki partur af spurningu heldur hverju ég er að leitast eftir: t.d. hver og hvernig voru tilraunirnar framkvæmdar).

Svar við sambærilegri spurningu var fyrst birt 2009. Nýtt svar var skrifað í október 2026.

Höfundur

Jón Emil Guðmundsson

prófessor í stjarneðlisfræði við HÍ

Útgáfudagur

13.10.2026

Spyrjandi

Tómas Zoëga, Elísabet Ólafsdóttir

Tilvísun

Jón Emil Guðmundsson. „Hvað eru fiseindir og hvenær voru þær fyrst uppgötvaðar?“ Vísindavefurinn, 13. október 2026, sótt 13. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=52561.

Jón Emil Guðmundsson. (2026, 13. október). Hvað eru fiseindir og hvenær voru þær fyrst uppgötvaðar? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=52561

Jón Emil Guðmundsson. „Hvað eru fiseindir og hvenær voru þær fyrst uppgötvaðar?“ Vísindavefurinn. 13. okt. 2026. Vefsíða. 13. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=52561>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...