Sólin Sólin Rís 07:07 • sest 19:32 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 19:34 • Sest 24:09 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:20 • Síðdegis: 15:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 08:42 • Síðdegis: 21:48 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er kurt og pí?

Guðrún Kvaran

Orðasambandið með kurt og pí merkir ‘hæversklega; með glæsibrag’ (ÍO 2002:828). Elst dæmi um það í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr gömlu kvæði sem birt er í safninu Íslenzk fornkvæði 6. bindi:
*Ása gèkk um stræti / með kurt og pí (kurtobí)

Í sviga fyrir aftan stendur kurtobí. Í Ritmálssafninu má finna myndirnar kurtobí og kurtópí frá 17. öld en engin dæmi voru tiltæk í safninu. Gætu þessar samandregnu myndir bent til að menn skildu orðasambandið ekki fyllilega.

Nelson flotaforingi kveðjur með kurt og pí áður en hann yfirgefur höfnina í Portsmouth á leið til átaka við sameiginlegan flota Frakka og Spánverja við Trafalgar. Málverk eftir breska málarann Fred Roe frá 1905.

Í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:519 og 708) kemur fram að uppruni orðasambandsins og samandregnu myndanna sé óljós. Kurt hafi ef til vill tengsl við nafnorðið kurt í merkingunni ‘hæverska; hirð (í fornu máli)’ en uppruni sé óljós. Í riti Jóns Friðjónssonar, Mergi málsins, kemur fram að uppruni orðasambandsins sé óljós en Jón giskar á að sé ef til vill stytting eða afbökun úr dönsku pietet ‘virðing’.

Heimildir og myndir:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

21.9.2026

Spyrjandi

Örn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er kurt og pí?“ Vísindavefurinn, 21. september 2026, sótt 21. september 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89183.

Guðrún Kvaran. (2026, 21. september). Hvað er kurt og pí? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89183

Guðrún Kvaran. „Hvað er kurt og pí?“ Vísindavefurinn. 21. sep. 2026. Vefsíða. 21. sep. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89183>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...