Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvers vegna er sagt: "klukkan er eitt, tvö eða þrjú," alltaf í hvorugkyni, en ekki í kvenkyni úr því að klukkan er kvenkynsorð?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Skýringin á þessu er ekki ljós en gæti verið þessi:

Orðasambandið hefur ef til vill mótast eftir dönsku: klokken er et en þar kemur hvorugkynsmyndin aðeins fram í tölunni et, en kyn sést ekki í to, tre og svo framvegis. Úrfelling gæti legið að baki í íslensku, til dæmis að orðið högg sé fellt brott. Klukkan slær eitt högg, klukkan slær tvö högg og svo framvegis verður klukkan slær eitt, klukkan slær tvö. Þá er leiðin opin fyrir dönsku áhrifin, það er að segja að klukkan er eitt. Einnig má benda á að hvorugkynið er hlutlausast allra kynja.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

17.12.2001

Síðast uppfært

12.3.2024

Spyrjandi

Eva Leplat-Sigurðsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvers vegna er sagt: "klukkan er eitt, tvö eða þrjú," alltaf í hvorugkyni, en ekki í kvenkyni úr því að klukkan er kvenkynsorð?“ Vísindavefurinn, 17. desember 2001, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=2012.

Guðrún Kvaran. (2001, 17. desember). Hvers vegna er sagt: "klukkan er eitt, tvö eða þrjú," alltaf í hvorugkyni, en ekki í kvenkyni úr því að klukkan er kvenkynsorð? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=2012

Guðrún Kvaran. „Hvers vegna er sagt: "klukkan er eitt, tvö eða þrjú," alltaf í hvorugkyni, en ekki í kvenkyni úr því að klukkan er kvenkynsorð?“ Vísindavefurinn. 17. des. 2001. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=2012>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...