Húðin er úr nokkrum mismunandi vefjum. Yst er þunnt hornlag sem er að mestu gert úr þekjuvefsfrumum.
Frumurnar eru dauðar yst á hornlaginu en dýpra eru þær lifandi og skipta sér stöðugt og endurnýja þannig ysta lagið. Húðfruma lifir að meðaltali í 20-50 daga.
Hornlagið gegnir meðal annars því hlutverki að verja undirliggjandi hluta húðarinnar gegn örverum og vatni.
Undir hornlaginu er þykk leðurhúð sem er aðallega gerð úr bandvef. Í leðurhúðinni eru einnig taugaendar, æðar, hársekkir, svita- og fitukirtlar og smágerðir vöðvar.
Húðin er stærsta líffæri líkamans. Í fullorðnum manni vegur hún um 5 kílógrömm og yfirborð hennar er um 2 fermetrar.
Hægt er að lesa nánar meira um húðina í svörum við eftirfarandi spurningum:- Er húðin líffæri?
- Ef maður sker af sér húðina á þumalfingri, kemur þá nákvæmlega sama fingrafar aftur?
- Gætu fílar andað eingöngu með húðinni?
- Af hverju skilja sár eftir sig ör?
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.