Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
ForsíðaHugvísindiSagnfræði: ÍslandssagaHvers vegna er Ingólfur Arnarson talinn fyrsti landnámsmaðurinn þegar Papar og fleiri menn fundu Ísland á undan honum?
Ingólfur Arnarson er talinn vera fyrsti landnámsmaðurinn í þeirri merkingu að hann er fyrsti maðurinn sem hóf hér skipulega og varanlega búsetu.
Heimildir um landnámsmanninn Ingólf er meðal annars að finna í Landnámu og Íslendingabók. Um heimildargildi Landnámu er hægt að lesa um í svari við spurningunni Hvert er heimildargildi Landnámu?
Aðrir nafngreindir menn eins og Hrafna-Flóki og Garðar Svavarsson komu hingað á undan Ingólfi en þeir hófu ekki búsetu hér.
Í svari Gísla Gunnarssonar við spurningunni Hvers vegna hefur Náttfara ekki verið hampað sem fyrsta landnámsmanninum? kemur fram að þrællinn Náttfari var fyrstur til að hefja ævilanga búsetu á Íslandi. Þegar Landnámabók var rituð hefur ríkum bændum og höfðingjum ekki þótt við hæfi að marka upphaf landnáms norrænna höfðingja við undankomu þræls Garðars Svavarssonar. Síðan þá hefur það verið hefð að telja Ingólf Arnarson fyrsta landnámsmanninn.
Um Papa á Íslandi er hægt að lesa í svari Axels Kristinssonar við spurningunni Eru til áþreifanlegar sannanir fyrir veru Papa á Íslandi fyrir landnám norrænna manna? Þar segir í lokaorðunum:
Engar áþreifanlegar sannanir eru fyrir veru Papa á Íslandi og full ástæða til að efast um að þeir hafi verið hér. Á hinn bóginn er heldur engin ástæða til að útiloka það.
JGÞ. „Hvers vegna er Ingólfur Arnarson talinn fyrsti landnámsmaðurinn þegar Papar og fleiri menn fundu Ísland á undan honum?“ Vísindavefurinn, 4. maí 2004, sótt 4. október 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4225.
JGÞ. (2004, 4. maí). Hvers vegna er Ingólfur Arnarson talinn fyrsti landnámsmaðurinn þegar Papar og fleiri menn fundu Ísland á undan honum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4225
JGÞ. „Hvers vegna er Ingólfur Arnarson talinn fyrsti landnámsmaðurinn þegar Papar og fleiri menn fundu Ísland á undan honum?“ Vísindavefurinn. 4. maí. 2004. Vefsíða. 4. okt. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4225>.