Sólin Sólin Rís 08:39 • sest 17:44 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 17:04 • Sest 02:53 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:46 • Síðdegis: 16:01 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:56 • Síðdegis: 22:19 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver var Ópía í Landnámu og hvað merkir nafnið?

Guðrún Kvaran

Engin Ópía kemur fram í nafnaskrá Landnámuútgáfu Hins íslenska fornritafélags. Í nafnagrunni mínum, Nöfn Íslendinga, sem aðgengilegur er á vef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, kemur þetta fram um nafnið Opía:
Aðeins ein kona virðist hafa borið þetta nafn. Í manntalinu frá 1703 er nefnd Opía Loftsdóttir og var hún sveitarómagi í Ási í Fellahreppi, Norður-Múlasýslu og Hjaltastað, þá 16 ára en dáin eftir 1749. Hugsanlega er það sama konan og sagt er frá í þjóðsögunni um Hjaltastaðafjandann en Opía var sögð kerling á Hjaltastöðum. Uppruni nafnsins er óviss.

Í þjóðsögunni (ÍÞJ 1954 I:297) segir ekkert um Opíu annað en „Kerling var þar ein að nafni Opía hverja hann (þ.e. Hjaltastaðafjandinn) kallaði konu sína“. Nafnið virðist hvergi koma fram í manntölum eftir 1703 og til 1920 á manntalsvef Þjóðskjalasafns og ekki síðar í þjóðskrá. Mér hefur ekki tekist að finna það í þeim innlendu og erlendu nafnabókum sem ég hef flett í.

Heimild og mynd:
  • ÍÞJ =Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri. 1954. Safnað hefur Jón Árnason. I. Ný útgáfa. Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfuna. Bókaútgáfan þjóðsaga.
  • Manntalsvefur Þjóðskjalasafns. https://www.manntal.is/
  • Ólafur Lárusson. 1960. Nöfn Íslendinga árið 1703. Hið íslenzka bókmenntafélag, Reykjavík.
  • Guðrún Kvaran. Nöfn Íslendinga. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. https://mannanofn.arnastofnun.is
  • Manntalsvefur Þjóðskjalasafns Íslands. (Sótt 15.10.2026).

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

22.10.2026

Spyrjandi

Freyja Ólafsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver var Ópía í Landnámu og hvað merkir nafnið?“ Vísindavefurinn, 22. október 2026, sótt 22. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=55022.

Guðrún Kvaran. (2026, 22. október). Hver var Ópía í Landnámu og hvað merkir nafnið? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=55022

Guðrún Kvaran. „Hver var Ópía í Landnámu og hvað merkir nafnið?“ Vísindavefurinn. 22. okt. 2026. Vefsíða. 22. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=55022>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...