Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað þýðir @ og hvers vegna er það notað í tölvupóstföngum?

HMH

@ er á ensku lesið 'at' og á íslensku hefur bæði verið stungið upp á þýðingunum 'á' eða 'á-merki', 'hjá' og 'að'.

Uppruni táknsins er úr bókhaldi. Það var og er sett á reikninga og þýðir 'á', dæmi: 300 stk @ 5 krónur stk. Í þessu samhengi er táknið lesið sem 'at' á ensku og trúlega hefur það stuðlað að því að þetta tákn var valið til þessara nota í tölvupóstinum í upphafi.

Strengurinn ritstjorn@visindavefur.rhi.hi.is væri þá lesinn sem: Ritstjórn hjá Vísindavefur, punktur, rhi, punktur, hi, punktur, is.

Þetta er notað í netföngum til að greina á milli pósthólfs og póstþjóns (tölvunnar sem hýsir). Ritstjórn hefur pósthólfið ritstjorn á póstþjóni sem merktur er visindavefur.rhi.hi.is.

Frekara lesefni af Vísindavefnum:

Mynd: @-merki - Sótt 23.07.10

Höfundur

Útgáfudagur

29.6.2000

Spyrjandi

Gísli Þorsteinsson

Tilvísun

HMH. „Hvað þýðir @ og hvers vegna er það notað í tölvupóstföngum?“ Vísindavefurinn, 29. júní 2000, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=594.

HMH. (2000, 29. júní). Hvað þýðir @ og hvers vegna er það notað í tölvupóstföngum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=594

HMH. „Hvað þýðir @ og hvers vegna er það notað í tölvupóstföngum?“ Vísindavefurinn. 29. jún. 2000. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=594>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað þýðir @ og hvers vegna er það notað í tölvupóstföngum?
@ er á ensku lesið 'at' og á íslensku hefur bæði verið stungið upp á þýðingunum 'á' eða 'á-merki', 'hjá' og 'að'.

Uppruni táknsins er úr bókhaldi. Það var og er sett á reikninga og þýðir 'á', dæmi: 300 stk @ 5 krónur stk. Í þessu samhengi er táknið lesið sem 'at' á ensku og trúlega hefur það stuðlað að því að þetta tákn var valið til þessara nota í tölvupóstinum í upphafi.

Strengurinn ritstjorn@visindavefur.rhi.hi.is væri þá lesinn sem: Ritstjórn hjá Vísindavefur, punktur, rhi, punktur, hi, punktur, is.

Þetta er notað í netföngum til að greina á milli pósthólfs og póstþjóns (tölvunnar sem hýsir). Ritstjórn hefur pósthólfið ritstjorn á póstþjóni sem merktur er visindavefur.rhi.hi.is.

Frekara lesefni af Vísindavefnum:

Mynd: @-merki - Sótt 23.07.10...