Sólin Sólin Rís 07:54 • sest 18:36 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 02:56 • Sest 18:04 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:03 • Síðdegis: 16:17 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:08 • Síðdegis: 22:40 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvers konar visi eða kvisi er aukvisi?

Guðrún Kvaran

Aukvisi ‘aumingi, væskill’ er forskeytt orð, au- og kvisi. Forskeytið au- er ekki mjög algengt en kemur m.a. fyrir í orðunum aufúsa ‘löngun, áhugi; þökk’, auvirða ‘óvirða, niðurlægja’ og auvirðilegur ‘lítilmótlegur’.

Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:529) er uppruni orðsins -kvisi óviss. Ekkert dæmi er um það ósamsett í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans en elsta dæmi þar um aukvisi er úr riti eftir Guðmund Ólafsson frá lokum 17. aldar:

Eirn er Økwise (al. Aukvise) i Ætt hvurre.

Kvenkynsorðið aukvisa og karlkynsorðið aukvisi koma fyrir í fornu máli. Í orðsifjabók Jan de Vries (1962:19) er vísað í sögnina kvisa seg í norskum mállýskum í merkingunni ‘hnipra sig saman af sársauka’ og eru tengsl ekki ólíkleg.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

7.10.2026

Spyrjandi

Örn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvers konar visi eða kvisi er aukvisi?“ Vísindavefurinn, 7. október 2026, sótt 7. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=81688.

Guðrún Kvaran. (2026, 7. október). Hvers konar visi eða kvisi er aukvisi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=81688

Guðrún Kvaran. „Hvers konar visi eða kvisi er aukvisi?“ Vísindavefurinn. 7. okt. 2026. Vefsíða. 7. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=81688>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...