Sólin Sólin Rís 09:14 • sest 17:08 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 24:36 • Sest 16:27 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 12:18 • Síðdegis: 25:09 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 05:48 • Síðdegis: 18:53 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Af hverju sjást engir jöklar á suðurhveli jarðar á kortum sem sýna útbreiðslu jökla á ísöld?

Sigurður Steinþórsson

Í heild hljóðaði spurningin svona:
Þegar ég sé líkön af síðustu ísöld þá er öll ísaldarjökulbreiðan yfir norðurheimshvelinu en aldrei því syðra. Af hverju? Var enginn snjór í S-Ameríku, Afríku og Ástralíu?

Munurinn á útbreiðslu ísaldarjökla á norður- og suðurhveli var landfræðilegur, ekki veðurfarslegur.

Fyrir norðan 50°N, þar sem loftslag er svalt, voru þær risavöxnu jökulbreiður N-Ameríku, Grænlands og Evrasíu sem sýndar eru á kortum. Á suðurhveli er Suðurskautslandið eitt sunnan við 50°S, að vísu auk Eldlands við suðurodda S-Ameríku (um 55°S). Suðuroddi meginlands Ástralíu er við 39°S, eyjan Tasmanía milli 41°og 43°S, suðuroddi Nýja-Sjálands 47°36’ og Afríku ~35°S.

Útbreiðsla jökla á jörðinni við hámark síðasta jökulskeiðs, fyrir um 27.000–21.000 árum. Fjólubláar útlínur sýna mestu útbreiðslu stóru jökulbreiðanna en grænir punktar tákna fjallajökla. Landgrunnsbrúnir eru sýndar í ljósari bláum lit, en víða um heim hefði þetta verið þurrt land vegna þess að yfirborð sjávar var lægra við hámark síðasta jökulskeiðs.

Stórar jökulbreiður þurfa land til að hvíla á en á suðurhveli er úthaf ríkjandi. Hins vegar uxu jöklar á suðurhveli á ísöld: í Andesfjöllum Chíle og Argentínu (Patagóníu-jökulbreiðan), í suður-ölpum Nýja-Sjálands og hálendi Tasmaníu. En þau skorti landflæmi til að breiða úr sér.

Myndir:

Höfundur

Sigurður Steinþórsson

prófessor emeritus

Útgáfudagur

2.11.2026

Spyrjandi

Steini G. Stefánsson

Tilvísun

Sigurður Steinþórsson. „Af hverju sjást engir jöklar á suðurhveli jarðar á kortum sem sýna útbreiðslu jökla á ísöld?“ Vísindavefurinn, 2. nóvember 2026, sótt 2. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=81755.

Sigurður Steinþórsson. (2026, 2. nóvember). Af hverju sjást engir jöklar á suðurhveli jarðar á kortum sem sýna útbreiðslu jökla á ísöld? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=81755

Sigurður Steinþórsson. „Af hverju sjást engir jöklar á suðurhveli jarðar á kortum sem sýna útbreiðslu jökla á ísöld?“ Vísindavefurinn. 2. nóv. 2026. Vefsíða. 2. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=81755>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Myndir:...