Sólin Sólin Rís 03:51 • sest 23:01 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 10:21 • Sest 03:27 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:55 • Síðdegis: 23:21 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:44 • Síðdegis: 16:55 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvers konar nöfn fengu fyrstu flugvélar á Íslandi?

Guðrún Kvaran

Flugvélum eru gefin nöfn eins og skipum. Fyrstu íslensku sjóflugvélarnar, sem teknar voru í notkun hérlendis, fengu nöfn eftir sjófuglum og voru nefndar Veiðibjallan og Súlan.

Þegar Loftleiðir tóku til starfa eignaðist félagið tvær vélar sem það gaf nöfnin Hekla og Geysir eftir þekktustu örnefnum landsins. Flugfélag Akureyrar gaf fyrstu vél sinni nafnið Örn eftir stærsta og tígulegasta fuglinum í íslenska dýraríkinu. Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar fékk nafnið Rán en Rán var ein af dætrum Ægis, þess guðs sem réði ríkjum í hafinu. Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar fékk nafnið Líf þar sem henni er ætlað að bjarga mannslífum.

Fyrstu íslensku sjóflugvélarnar, sem teknar voru í notkun hérlendis, fengu nöfn eftir sjófuglum og voru nefndar <em>Veiðibjallan</em> og <em>Súlan</em>.

Fyrstu íslensku sjóflugvélarnar, sem teknar voru í notkun hérlendis, fengu nöfn eftir sjófuglum og voru nefndar Veiðibjallan og Súlan.

Einnig þekkist að sami síðari liður samsetts orðs sé valinn á margar flugvélar sama flugfélagsins. Þannig gaf Flugfélag Íslands vélum sínum nöfn sem enduðu á -faxi, t.d. Glitfaxi, Glófaxi, Gullfaxi, Hrímfaxi, Sólfaxi. Vélar Flugleiða höfðu allar kvenmannsnöfn sem enduðu á -dís, til dæmis Aldís, Ásdís, Bryndís, Eydís, Freydís, Hafdís, Sóldís, Svandís.

Að frátöldum nöfnum sem enda á -dís eru flugvélum sjaldan gefin mannanöfn. Þó hétu vélar Loftleiða, sem einkum flugu vestur um haf, eftir hjónunum Guðríði Þorbjarnardóttur og Þorfinni karlsefni og syni þeirra Snorra Þorfinnssyni, sem þekkt voru fyrir Grænlands- og Vínlandsferðir sínar til forna.

Myndir:

Þetta svar birtist upprunalega hér og var endurskoðað fyrir birtingu á Vísindavefnum.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

22.5.2026

Spyrjandi

Árni Friðriksson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvers konar nöfn fengu fyrstu flugvélar á Íslandi?“ Vísindavefurinn, 22. maí 2026, sótt 22. maí 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=87889.

Guðrún Kvaran. (2026, 22. maí). Hvers konar nöfn fengu fyrstu flugvélar á Íslandi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87889

Guðrún Kvaran. „Hvers konar nöfn fengu fyrstu flugvélar á Íslandi?“ Vísindavefurinn. 22. maí. 2026. Vefsíða. 22. maí. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87889>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvers konar nöfn fengu fyrstu flugvélar á Íslandi?
Flugvélum eru gefin nöfn eins og skipum. Fyrstu íslensku sjóflugvélarnar, sem teknar voru í notkun hérlendis, fengu nöfn eftir sjófuglum og voru nefndar Veiðibjallan og Súlan.

Þegar Loftleiðir tóku til starfa eignaðist félagið tvær vélar sem það gaf nöfnin Hekla og Geysir eftir þekktustu örnefnum landsins. Flugfélag Akureyrar gaf fyrstu vél sinni nafnið Örn eftir stærsta og tígulegasta fuglinum í íslenska dýraríkinu. Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar fékk nafnið Rán en Rán var ein af dætrum Ægis, þess guðs sem réði ríkjum í hafinu. Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar fékk nafnið Líf þar sem henni er ætlað að bjarga mannslífum.

Fyrstu íslensku sjóflugvélarnar, sem teknar voru í notkun hérlendis, fengu nöfn eftir sjófuglum og voru nefndar <em>Veiðibjallan</em> og <em>Súlan</em>.

Fyrstu íslensku sjóflugvélarnar, sem teknar voru í notkun hérlendis, fengu nöfn eftir sjófuglum og voru nefndar Veiðibjallan og Súlan.

Einnig þekkist að sami síðari liður samsetts orðs sé valinn á margar flugvélar sama flugfélagsins. Þannig gaf Flugfélag Íslands vélum sínum nöfn sem enduðu á -faxi, t.d. Glitfaxi, Glófaxi, Gullfaxi, Hrímfaxi, Sólfaxi. Vélar Flugleiða höfðu allar kvenmannsnöfn sem enduðu á -dís, til dæmis Aldís, Ásdís, Bryndís, Eydís, Freydís, Hafdís, Sóldís, Svandís.

Að frátöldum nöfnum sem enda á -dís eru flugvélum sjaldan gefin mannanöfn. Þó hétu vélar Loftleiða, sem einkum flugu vestur um haf, eftir hjónunum Guðríði Þorbjarnardóttur og Þorfinni karlsefni og syni þeirra Snorra Þorfinnssyni, sem þekkt voru fyrir Grænlands- og Vínlandsferðir sínar til forna.

Myndir:

Þetta svar birtist upprunalega hér og var endurskoðað fyrir birtingu á Vísindavefnum....