Sólin Sólin Rís 06:16 • sest 20:37 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:07 • Síðdegis: 22:32 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:53 • Síðdegis: 16:24 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað eru tennur í hvítháfum stórar?

Jón Már Halldórsson

Stærstu tennur hvítháfa (Carcharodon carcharias) geta orðið um eða yfir 6 cm langar og eru líklega stærstu tennur núlifandi hákarla. Þetta er sagt með þeim fyrirvara að erfitt er að finna nákvæma og algilda tölu þar sem hinum ýmsu heimildum ber ekki alveg saman. Dýr sem skarta svo stórum tönnum geta verið býsna ófrýnileg en þessar tennur eru þó smávaxnar í samanburði við tennur útdauða risahákarlsins megalodon sem voru allt að 17 cm langar.

Hvítháfar veiða með því að grípa eða ráðast á bráð sína, rífa úr henni stykki og gleypa. Tanngerðin er algjörlega aðlöguð þessari fæðuöflun. Rannsóknir hafa leitt í ljós að lögun tannanna breytist á lífleiðinni og endurspeglar það hvernig fæðuval breytist eftir því sem dýrin stækka.

Ungir hvítháfar lifa aðallega á fiskum og höfuðfætlingum. Til þess að geta stungið í og náð góðu taki á sleipri bráðinni eru tennur þeirra aflangar og oddhvassar með litlum hliðartindum neðst á hverri tönn. Tennur fullvaxinna dýra eru hins vegar breiðari, meira þríhyrningslaga og sagtenntar á jöðrunum. Hjá fullorðnum hvítháfum er hærra hlutfall spendýra í fæðunni, svo sem selir, sæljón og minni hvalir, sæskjaldbökur, aðrir hákarlar, hræ og fleira, og þá skiptir meira máli að hafa tennur sem geta skorið í gegnum spik, vöðva og bein.

Stærstu tennur hvítháfa (<em>Carcharodon carcharias</em>) geta orðið um eða yfir 6 cm langar og eru líklega stærstu tennur núlifandi hákarla.

Stærstu tennur hvítháfa (Carcharodon carcharias) geta orðið um eða yfir 6 cm langar og eru líklega stærstu tennur núlifandi hákarla.

Ólíkt flestum öðrum hryggdýrum endurnýjast tennur í hákörlum ævina á enda. Á hverjum tíma hafa hvítháfar um það bil 300 tennur í nokkrum röðum. Í fremstu röðinni eru virkar tennur sem sjá um bitið sjálft en í röðunum fyrir aftan eru fullmyndaðar tennur sem bíða þess að færast fram þegar tönn í fremstu röð losnar. Hjá yngri dýrum endurnýjast tennurnar í fremstu röð á um það bil 100 daga fresti en hjá eldri dýrum tekur endurnýjunin lengri tíma eða um 230 daga. Hvítháfar geta orðið yfir 70 ára gamlir og framleitt yfir 30.000 tennur yfir ævina. Það er töluvert meira en þær 20 barnatennur og 32 fullorðinstennur sem flest mannfólk nær að skarta á lífsleiðinni.

Heimildir:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

3.9.2026

Spyrjandi

Sævar Leó Jóhannsson

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvað eru tennur í hvítháfum stórar?“ Vísindavefurinn, 3. september 2026, sótt 3. september 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88370.

Jón Már Halldórsson. (2026, 3. september). Hvað eru tennur í hvítháfum stórar? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88370

Jón Már Halldórsson. „Hvað eru tennur í hvítháfum stórar?“ Vísindavefurinn. 3. sep. 2026. Vefsíða. 3. sep. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88370>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Heimildir:...