Sólin Sólin Rís 05:10 • sest 21:43 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 17:48 • Sest 04:45 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:17 • Síðdegis: 16:48 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:36 • Síðdegis: 22:55 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað gerðu væringjar, voru þeir stétt eða þjóð?

Sverrir Jakobsson

Elsta heimild þar sem væringjar eru nefndir er rit um landafræði eftir Abu Rayhan Muhammad ibn Ahmad al-Biruni (um 973-um 1050), sem var einn mesti stærðfræðingur og málamaður á fyrri hluta 11. aldar. Í persnesku riti um stjörnur, Al-Tafhim li Awa'il Sana'at al-Tanjim, fjallar hann um lönd heimsins og skiptir heiminum í veðurbelti (klimata) að sið forngrískra fræðimanna. Í sjöunda veðurbelti nefnir hann meðal annars væringja (al-warank) við hlið Rus og virðist líta á hvorttveggja sem þjóðir. Væringjar eru taldir upp ásamt Rus, en það er eldra heiti yfir norræna menn í Austurvegi og þekkist allt frá 9. öld. Bæði væringjar og Rus áttu sveitir í her Rómarveldis og eru nefndir ýmist sitt i hvoru lagi eða saman

Heitið „væringi“ kemur fyrir í ýmsum grískum ritum frá seinni hluta 11. aldar, til dæmis sagnaritinu Synopsis historion eftir Jóhannes Skylitzes og Áminningarræðu til keisarans, Logos nouthetetikos eftir Kekaumenos. Í seinna ritinu er nefndur Haraldur, „konungssonur frá Væringjalandi“ (βασιλέως μὲν Βαραγγίας ἦν υἷος), bróðir Ólafs konungs, og er talið víst að það muni vera Haraldur Sigurðsson Noregskonungur (r. 1046-1066), sem síðar varð kunnur sem Haraldur harðráði. Virðist höfundur, líkt og al-Biruni áður, líta á væringja sem þjóð sem búi í sérstöku landi. Það er þó ósennilegt að heitið hafi einungis vísað til manna frá Noregi en sennilegt að það hafi verið notað yfir alla norræna menn, sem ekki tilheyrðum nýstofnuðum borgríkjum í Austurvegi sem kennd voru við Rus.

Málverk eftir rússneska málarann Viktor Mikhaylovich Vasnetsov (1848-1926) af væringjum í Staraya Ladoga. Málverkið er frá fyrri hluta 20. aldar.

Í Morkinskinnu, íslensku sagnriti um Noregskonunga frá um 1220 er sagt að í Konstantínópel á dögum Haralds harðráða hafi verið „fjöldi ... Norðmanna, er þeir kalla Væringja.“, líkt og orðið sé ekki vel þekkt á þeim tíma. Þetta er eitt af elstu dæmum í norrænum ritum um væringja í Austurvegi og virðist einnig vera þjóðarheiti. Á hinn bóginn eru norrænir menn sem nefndir eru þessu heiti iðulega hermenn í her Rómarveldis og gæti hafi orðið yfirfærsla á þessu heiti: Að það hafi náð yfir norræna menn í Austurvegi sem ekki tilheyrðu Rus og þá einkum menn sem þjónuðu í her Rómarveldis. Í grískum heimildum frá seinni hluta 11. aldar og síðar er getið um væringja sem þjónuðu í lífverði keisarans, en orðið væringi var alls ekki takmarkað við hermenn í þeirri tilteknu herdeild.

Heimild og myndir:
  • Sverrir Jakobsson, The Varangians. In God´s Only Fire, Cham: Palgrave Macmillan, 2020.
  • Yfirlitsmynd: Picryl.com. (Sótt 24.04.2026).
  • Varangians - Wikipedia. (Sótt 24.04.2026).

Spurningu Mörtu Ewu er hér svarað að hluta.

Höfundur

Sverrir Jakobsson

prófessor í miðaldasögu við HÍ

Útgáfudagur

28.4.2026

Spyrjandi

Marta Ewa Bartoszek

Tilvísun

Sverrir Jakobsson. „Hvað gerðu væringjar, voru þeir stétt eða þjóð?“ Vísindavefurinn, 28. apríl 2026, sótt 28. apríl 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88380.

Sverrir Jakobsson. (2026, 28. apríl). Hvað gerðu væringjar, voru þeir stétt eða þjóð? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88380

Sverrir Jakobsson. „Hvað gerðu væringjar, voru þeir stétt eða þjóð?“ Vísindavefurinn. 28. apr. 2026. Vefsíða. 28. apr. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88380>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað gerðu væringjar, voru þeir stétt eða þjóð?
Elsta heimild þar sem væringjar eru nefndir er rit um landafræði eftir Abu Rayhan Muhammad ibn Ahmad al-Biruni (um 973-um 1050), sem var einn mesti stærðfræðingur og málamaður á fyrri hluta 11. aldar. Í persnesku riti um stjörnur, Al-Tafhim li Awa'il Sana'at al-Tanjim, fjallar hann um lönd heimsins og skiptir heiminum í veðurbelti (klimata) að sið forngrískra fræðimanna. Í sjöunda veðurbelti nefnir hann meðal annars væringja (al-warank) við hlið Rus og virðist líta á hvorttveggja sem þjóðir. Væringjar eru taldir upp ásamt Rus, en það er eldra heiti yfir norræna menn í Austurvegi og þekkist allt frá 9. öld. Bæði væringjar og Rus áttu sveitir í her Rómarveldis og eru nefndir ýmist sitt i hvoru lagi eða saman

Heitið „væringi“ kemur fyrir í ýmsum grískum ritum frá seinni hluta 11. aldar, til dæmis sagnaritinu Synopsis historion eftir Jóhannes Skylitzes og Áminningarræðu til keisarans, Logos nouthetetikos eftir Kekaumenos. Í seinna ritinu er nefndur Haraldur, „konungssonur frá Væringjalandi“ (βασιλέως μὲν Βαραγγίας ἦν υἷος), bróðir Ólafs konungs, og er talið víst að það muni vera Haraldur Sigurðsson Noregskonungur (r. 1046-1066), sem síðar varð kunnur sem Haraldur harðráði. Virðist höfundur, líkt og al-Biruni áður, líta á væringja sem þjóð sem búi í sérstöku landi. Það er þó ósennilegt að heitið hafi einungis vísað til manna frá Noregi en sennilegt að það hafi verið notað yfir alla norræna menn, sem ekki tilheyrðum nýstofnuðum borgríkjum í Austurvegi sem kennd voru við Rus.

Málverk eftir rússneska málarann Viktor Mikhaylovich Vasnetsov (1848-1926) af væringjum í Staraya Ladoga. Málverkið er frá fyrri hluta 20. aldar.

Málverk eftir rússneska málarann Viktor Mikhaylovich Vasnetsov (1848-1926) af væringjum í Staraya Ladoga. Málverkið er frá fyrri hluta 20. aldar.

Í Morkinskinnu, íslensku sagnriti um Noregskonunga frá um 1220 er sagt að í Konstantínópel á dögum Haralds harðráða hafi verið „fjöldi ... Norðmanna, er þeir kalla Væringja.“, líkt og orðið sé ekki vel þekkt á þeim tíma. Þetta er eitt af elstu dæmum í norrænum ritum um væringja í Austurvegi og virðist einnig vera þjóðarheiti. Á hinn bóginn eru norrænir menn sem nefndir eru þessu heiti iðulega hermenn í her Rómarveldis og gæti hafi orðið yfirfærsla á þessu heiti: Að það hafi náð yfir norræna menn í Austurvegi sem ekki tilheyrðu Rus og þá einkum menn sem þjónuðu í her Rómarveldis. Í grískum heimildum frá seinni hluta 11. aldar og síðar er getið um væringja sem þjónuðu í lífverði keisarans, en orðið væringi var alls ekki takmarkað við hermenn í þeirri tilteknu herdeild.

Heimild og myndir:
  • Sverrir Jakobsson, The Varangians. In God´s Only Fire, Cham: Palgrave Macmillan, 2020.
  • Yfirlitsmynd: Picryl.com. (Sótt 24.04.2026).
  • Varangians - Wikipedia. (Sótt 24.04.2026).

Spurningu Mörtu Ewu er hér svarað að hluta....