Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Það var uppgötvuð ný tegund af risaeðlu sem heitir Spinosaurus mirabilis. Hef ekki séð neinar fréttir um þetta hér á landi, væri æðislegt að sjá ykkur tala um það!
Í leiðöngrum í Níger, langt inni í Sahara-eyðimörkinni á árunum 2019 og sérstaklega 2022, fundust leifar af áður óþekktri risaeðlu af ætt uggeðla (Spinosauridae). Meira en ein öld er síðan uggeðlutegund fannst síðast. Uppgötvunin vakti því nokkra athygli, sér í lagi eftir að tímaritið Science birti grein snemma árs 2026 um leiðangrana og afrakstur þeirra.
Þessi nýuppgötvaða risaeðla hefur fengið vísindaheitið Spinosaurus mirabilis en latneska orðið mirabilis má þýða sem stórkostlegur eða undraverður. Henni hefur ekki verið gefið íslenskt heiti þegar þetta er skrifað í mars 2026.
S. mirabilis var uppi á krítartímanum fyrir um 95 milljón árum. Út frá þeim takmörkuðu leifum sem fundist hafa er ekki hægt að segja með vissu hversu stór risaeðlan var. Líklegt þykir þó að hún hafi verið með stærstu ráneðlum miðlífsaldar, mögulega allt að 12 metra löng og 5-7 tonn að þyngd. Þannig hefur hún verið áþekk hinni frægu grameðlu (Tyrannosaurus rex) og tegundum af ættkvíslinni Giganotosaurus. Þetta hefur því verið mikilfengleg skepna eins og latneska heitið ber með sér.
Spinosaurus mirabilis var töluvert stór risaeðla með myndarlegan beinkamb á höfði og segl á baki.
S. mirabilis var með mikinn beinkamb á höfði, um 50 cm á lengd og í laginu líkt og bjúgsverð. Talið er að kamburinn hafi átt að laða að sér maka eða sýna yfirráð, frekar en að hann hafi gegnt einhverju hlutverki við veiðar. Á bakinu var „segl“ sem mögulega var allt að 2 metrar á hæð. Það gæti hafa haft eitthvað með hitastjórnun að gera eða haft svipað hlutverk og höfuðkamburinn. Höfuðkúpan var löng og nokkuð flöt með trjónu, í ætt við það sem gerist hjá kókódílum.
Tennur voru keilulaga og aðeins gisnar, þannig að tennur í efri og neðri skolti féllu vel saman. Það er góð vísbending um aðlögun að fiskáti þar sem slíkt gagnast vel við veiðar á sleipum fiskum. Sennilega hefur S. mirabilis vakað yfir vötnum líkt og hegrar nútímans gera í dag og hafa vísindamenn kallað hana djöfla-hegra í gamni.
Leifar S. mirabilis fundust grafnar undir setlögum árbakka. Vísindamenn hafa getið sér þess til að heimkynni hennar hafi verið í skógivöxnum svæðum nærri árbökkum eða grunnum vatnasvæðum, þar sem hægt var að vaða út í og veiða sér fisk til matar.
S. mirabilis er önnur tegundin sem uppgötvast af þessari ættkvísl, hin er S. aegyptiacus sem hefur kallast uggeðla á íslensku. Þeirri tegund var lýst árið 1915 og var hún talsvert stórvaxnari en sú sem uppgötvaðist nýverið. Steingerðar leifar S. aegyptiacus hafa fundist bæði í Egyptalandi og Marokkó. Sú tegund lifið sennilega á strandsvæði hins forna Tethys-hafs og veiddi þar, líkt og frænka sín, fiska og mögulega froskdýr sem lifðu á miðlífsöld.
Heimildir, frekari fróðleikur og myndir:
Jón Már Halldórsson. „Hvað er vitað um risaeðlutegundina Spinosaurus mirabilis sem fyrst var lýst 2026?“ Vísindavefurinn, 11. mars 2026, sótt 11. mars 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88491.
Jón Már Halldórsson. (2026, 11. mars). Hvað er vitað um risaeðlutegundina Spinosaurus mirabilis sem fyrst var lýst 2026? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88491
Jón Már Halldórsson. „Hvað er vitað um risaeðlutegundina Spinosaurus mirabilis sem fyrst var lýst 2026?“ Vísindavefurinn. 11. mar. 2026. Vefsíða. 11. mar. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88491>.