Sólin Sólin Rís 04:43 • sest 22:08 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:58 • Síðdegis: 21:19 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:58 • Síðdegis: 14:54 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Geta silfurskottur klifrað?

Jón Már Halldórsson

Silfurskottur (Lepisma saccharina) eru meðal algengustu meindýra í híbýlum manna hér á landi. Þær þrífast best í röku og hlýju umhverfi, svo sem á baðherbergjum, í þvottahúsum, kjöllurum eða illa loftræstum rýmum en finnast líka til dæmis í eldhúsum og bókahillum þar sem þær komast í gott æti.

Silfurskottur eru ljósfælnar og kunna vel við sig í sprungum, rifum, í skápum og úti í hornum eða öðrum skúmaskotum. Ef ljós er kveikt í rými þar sem þær eru á ferðinni sjást þær gjarnan skjótast hið snarasta í skjól.

Silfurskottur halda sig yfirleitt á nokkuð láréttu yfirborði en þær geta auðveldlega klifrað upp hrjúfa og jafnvel málaða veggi þótt þær fari ekki eins hratt yfir þar og til dæmis á gólfi. Þær hafa klær og loðna þófa sem gerir þeim kleift að ganga upp lóðrétta veggi. Fullkomlega sléttir lóðréttir fletir, svo sem gler, plast og sléttar flísar, eru þeim hins vegar erfiðir og sjást silfurskottur því vafalaust afar sjaldan á slíkum stöðum.

Yfirlitsmynd:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

6.5.2026

Spyrjandi

Auður

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Geta silfurskottur klifrað?“ Vísindavefurinn, 6. maí 2026, sótt 6. maí 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88520.

Jón Már Halldórsson. (2026, 6. maí). Geta silfurskottur klifrað? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88520

Jón Már Halldórsson. „Geta silfurskottur klifrað?“ Vísindavefurinn. 6. maí. 2026. Vefsíða. 6. maí. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88520>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Geta silfurskottur klifrað?
Silfurskottur (Lepisma saccharina) eru meðal algengustu meindýra í híbýlum manna hér á landi. Þær þrífast best í röku og hlýju umhverfi, svo sem á baðherbergjum, í þvottahúsum, kjöllurum eða illa loftræstum rýmum en finnast líka til dæmis í eldhúsum og bókahillum þar sem þær komast í gott æti.

Silfurskottur eru ljósfælnar og kunna vel við sig í sprungum, rifum, í skápum og úti í hornum eða öðrum skúmaskotum. Ef ljós er kveikt í rými þar sem þær eru á ferðinni sjást þær gjarnan skjótast hið snarasta í skjól.

Silfurskottur halda sig yfirleitt á nokkuð láréttu yfirborði en þær geta auðveldlega klifrað upp hrjúfa og jafnvel málaða veggi þótt þær fari ekki eins hratt yfir þar og til dæmis á gólfi. Þær hafa klær og loðna þófa sem gerir þeim kleift að ganga upp lóðrétta veggi. Fullkomlega sléttir lóðréttir fletir, svo sem gler, plast og sléttar flísar, eru þeim hins vegar erfiðir og sjást silfurskottur því vafalaust afar sjaldan á slíkum stöðum.

Yfirlitsmynd:...