Sólin Sólin Rís 03:00 • sest 23:56 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:30 • Sest 20:58 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:30 • Síðdegis: 16:02 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:48 • Síðdegis: 22:25 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver er bókstafleg merking orðanna í orðatiltækinu „að stappa í einhvern stálinu“?

Guðrún Kvaran

Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Er bókstafleg merking orðanna í orðatiltækinu „að stappa í einhvern stálinu“ að stappa (troða) einhverju hörðu/sterku (stál) í einhvern, eða á þetta við aðra merkingu orðanna?

Orðasambandið að stappa stálinu í einhvern merkir ‘telja kjark í e-n, hvetja e-n til að gefast ekki upp’. Elst dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er að finna í Kvöldvökum Hannesar Finnssonar frá 1796:
var Eiríkur ad blása ad þeim kolum, og stappa á mótpartana stálinu.

Prófessor Halldór Halldórsson gerir mjög góða grein fyrir merkingu orðataksins og gef ég honum orðið:
Það á rætur að rekja til vopnasmíða. Meginhluti axarblaðs var úr járni, en stál var sett í eggina á þann átt, að skora var gerð í járnið og stálteinn látinn í hana, og síðan var stálið og járnið soðið saman … Að láta stálteininn í hefir verið kallað að stappa stálinu í.
Með þessu var vopnið gert styrkara.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

12.6.2026

Spyrjandi

Magnús

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er bókstafleg merking orðanna í orðatiltækinu „að stappa í einhvern stálinu“?“ Vísindavefurinn, 12. júní 2026, sótt 12. júní 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88529.

Guðrún Kvaran. (2026, 12. júní). Hver er bókstafleg merking orðanna í orðatiltækinu „að stappa í einhvern stálinu“? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88529

Guðrún Kvaran. „Hver er bókstafleg merking orðanna í orðatiltækinu „að stappa í einhvern stálinu“?“ Vísindavefurinn. 12. jún. 2026. Vefsíða. 12. jún. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88529>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...