svona til gamans: Þessi Hitler átti heima hér í nágrenni Sauðárkróks, en fjölmennt herlið var hér á stríðsárunum í bænum, hafði eigandi hundsins kallað á Hitler einhverju sinni er hann fór fram hjá bröggum þeirra og þustu þeir til móts við hann, varð þarna talsverð töf, því eigandi hundsins varð að sanna að hundurinn gegndi þessu nafni, en sjálfur var hann mállaus á enska tungu.

Hundurinn Snotra. Á 20. öld var algengast að gefa hundum nöfn á grundvelli litar, útlits feldar og eftir skapgerð eða lyndiseinkennum hans.
„Hrefna mín blessunin hlaut ekki nafn sitt fyrir svarta gljáandi litinn. Nei, það voru þessi fögru djúpu augu, sem alltaf minntu mig á fallega unga stúlku í næsta húsi við mig þegar ég var 6 ára á Vopnafirði. Alltaf er ég horf[ði] í augu Hrefnu minnar þá minnti hún mig á Hrefnu með fallegu augun á Vopnafirði.Í þessu samhengi má þó nefna að nafnið Sámur er bæði mannsnafn í fornritum (til dæmis í Hrafnkels sögu) og hundsnafn (í Njáls sögu) en nafnið hverfur þó sem mannsafn og er enga karlmenn sem heita Sámur að finna í heimildum frá seinni tímum (til dæmis manntölum). Almennt er óhætt að segja að íslenskar nafngiftahefðir hvað hunda varðar á 20. öld endurspegli eldri hefðir; einnig eru þessar hefðir svipaðar öðrum hefðum frá Skandinavíu (Leibring 2016a: 623). Þar að auki, eins og er að finna til dæmis í Svíþjóð, eru nokkur hundanöfn búin til sem eins konar grín. Ein „glettin“ kona er sögð hafa „skírt hund ‚Sama og þú‘, til að gamna sér við upplitið á fólki, þegar það færi að velta nafni fyrir sér.“ Óvíst er hvort hefðin fyrir því að nota sama nafn fyrir margar kynslóðir hunda sé að finna fyrir utan Ísland en nokkur dæmi eru um þetta í svörunum, t.d.: „Hrafn hétu hundar pabba. Þegar sá fyrsti gaf upp andann þá fékk pabbi sér annan svartan hund sem fékk nafnið Hrafn.“ Íslensk hundanöfn á 21. öld Hvað nöfn á hundum í dag varðar þá er hægt að sjá skýra breytingu. Í tiltölulega nýrri spurningaskrá sem Þjóðminjasafnið sendi út árið 2016 („Gæludýr“, Spurningaskrá 2016-1) er spurt um gæludýr og viðhorf eigenda þeirra. Meðal annars er spurt um nöfn gæludýra og hvort eigendur skynji á nokkurn hátt breytingar eða nýjungar í nafnahefðum. Margir gefa þau svör að svo virðist vera sem hundanöfn séu miklu fjölbreyttari í dag miðað við fyrri tíma og að nú sé algengt að hundar á Íslandi beri mannanöfn, bæði íslensk og erlend. Tvísýnt, jákvætt og neikvætt viðhorf til þessara breytinga koma fram í svörunum og athugasemdum: „Ég held að dýranöfn séu fjölbreyttari núna og séu stundum af erlendum toga“; „dýranöfn hafa verið að verða fjölbreyttari og oft flottari“; „Mér finnst þetta skemmtileg þróun“; „Ég veit ekki með breytingar á gæludýranöfnum, fylgist svo sem ekki með, en held að það breytist eins og mannanöfn. Núna heyri ég aldrei um hundinn Snata, það er synd ... Það er slæmt ef gömul dýranöfn glatast en það er sjálfsagt þannig með þau eins og gömul og góð mannanöfn“; „Mér finnst eins og sumir gefa gæludýrum sínum mannanöfn. Það finnst mér svolítið skrítið“; „Það virðist vera meira um að gæludýr fái útlensk nöfn sem mér er ekki að skapi, þar sem ég vil halda í íslenskar hefðir.“ Sumir velta breytingunum fyrir sér og hugsa um skýringu á þróuninni. Einn einstaklingur skrifar:
Ég held að gæludýranöfn hafi verið að persónugerast síðustu ár eða áratugi, mín tilfinning er að eftir því sem gæludýr hafa flutt sig úr sveitunum og farið úr því að vera hálfgerð vinnudýr og yfir í það að vera bara viðbót við fjölskyldur, snatar og lappar erum amk mun sjaldgæfari en þeir voru, en ég hef hitt hund sem hét [nafn] í höfuðið á afa sínum.Með tilliti til fyrri hluta athugasemdarinnar þá er náttúrlega ekki langt síðan hundar voru samþykktir sem gæludýr í Reykjavík, en þar voru hundar bannaðir frá 1924–1984 og það var ekki fyrr en árið 2006 að Reykjavíkurborg leyfði hundahald innan borgarinnar að fullu (sjá Martha Elena Laxdal 2014). Hægt er að sjá meira skapandi og hreyfanlegt viðhorf til hundanafna sem hluta af stærri þróun í samfélaginu, líkt og gildir um mannanöfn, og frelsi til að velja eða búa til ný nöfn. Nafnfræðingurinn Katharina Leibring hefur greint mynstur í Svíþjóð þar sem barnanöfn hafa orðið til fyrir áhrif vinsælla hundanafna, og hún segir að „two-way traffic, whereby names can wander from humans to animals and back again, has evolved in recent decades, possibly as a consequence of the widespread anthropomorphisation of companion animals“ (2016b: 117–118). Ef til vill er vísir að svipaðri tísku á Íslandi, þótt mannanafnalög og takmarkanir varðandi val barnanafna þýði að hundar og hundanöfn geti ekki verið tilraunarsvið fyrir ný barnanöfn eins einfaldlega og í Svíþjóð. Engu að síður skrifar einn þátttakandi í könnuninni 2016 að nöfn séu „að verða líkari mannanöfnum, því fleira fólk er að skíra börnin sín gæludýranöfnum.“ Ljóst er, alveg eins og á við um mannanöfn, að spurningar um sjálfsmynd manns og hugmyndafræði spila stóran þátt í hundanafnahefð á Íslandi – stundum á skýran hátt og stundum óskýran – og á því er engin breyting. Heimildir og myndir:
- Guðrún Kvaran, Nöfn manna, dýra og dauðra hluta. https://ait.arnastofnun.is/grein.php?id=103
- Katharina Leibring, 2016a. ‚Animal Names‘, í The Oxford Handbook of Names and Naming. Ritstj. Carole Hough, bls. 615–627.
- Katharina Leibring, 2016b. ‚Names of Companion Animals: Rovers in the Onomasticon?‘ í Names and Their Environment. Proceedings of the 25th International Congress of Onomastic Sciences, Glasgow, 25–29 August 2014. Vol. 5. Literary Onomastics. Other Names. Commercial Names. Ritstj. Carole Hough og Daria Izdebska, bls. 114–122.
- Kendra Willson, 2023. ‚Eru öll Blæ ánægð? Gender-bending Icelandic Names‘, NORNA Rapporter 100. Namn och gränser Rapport från den sjuttonde nordiska namnforskarkongressen den 8–11 juni 2021. Ritstj. Väinö Syrjälä, Terhi Ainiala og Pamela Gustavsson, bls. 37–55. https://www.norna.org/sites/default/files/rapporter/NORNA100.pdf
- Martha Elena Laxdal, 2014. ‚„Þeir verða að finna ... annað til að láta ástúðina bitna á“: Saga hundahalds í Reykjavík 1924–1984‘, BA-ritgerð, Háskólinn á Akureyri, á netinu. https://skemman.is/bitstream/1946/18784/1/Lokaskil_BAritg_
Martha_Saga_hundahalds_í_Reykjavík_1924_til_1984_HEILDIN.pdf - Yfirlitsmynd: PickPik. https://www.pickpik.com/border-collie-puppy-dog-white-black-border-148540
- Sigríður Sigurðardóttir. Birt með góðfúslegu leyfi.
- Corinne Benavides. (2014). Wayra the Border Collie. Flickr. Birt undir CC BY-NC 2.0 leyfi. https://www.flickr.com/photos/corinne_benavides/17947718461
