Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Jökulhlaup eru oftast flokkuð eftir mesta rennsli. Minni hlaup halda sig að mestu við farvegi, en stærstu hlaupin flæmast yfir stór landsvæði og hafa margfaldan rofmátt og getu til setflutninga. Einfaldast er að skrá hámarksrennslið í rúmmetrum á sekúndu, en slíkar tölur eru jafnan óáreiðanlegar. einkum fyrir stærri hlaup. Því getur verið hentugt að flokka þau í samræmi við þá óvissu sem jafnan er í mati á hámarksrennsli. Í töflunni hér fyrir neðan er gróf stærðarflokkun
Stærðir jökulhlaupa
Flokkur
stærð
hámarksrennsli m³/s
Smáhlaup
0
<1.000
Lítið hlaup
1
1.000–3.000
Töluvert hlaup
2
3.000–10.000
Mikið hlaup
3
10.000–30.000
Stórhlaup
4
30.000–100.000
Hamfarahlaup
5
100.000–300.000
Hamfarahlaup
6
>300.000
Stærri Skaftárhlaup eru lítil, en þau minni eru smáhlaup. Svo til öll Skeiðarárhlaup á tímabilinu 1982-1996 teljast lítil, Skeiðarárhlaupið 1954 var töluvert, jafnvel mikið, meðan hlaupin 1934, 1938 og 1996 voru stórhlaup. Kötluhlaupið 1918 og önnur stærri Kötluhlaup fara í flokk hamfarahlaupa.
Heildarvatnsmagn hlaupa er mjög misjafnt. Dæmi um mjög lítil hlaup er þegar sigkatlar í Mýrdalsjökli tæmast, en þar getur heildarvatnsmagn numið um eða undir einni milljón rúmmetra. Í Skaftárhlaupum er heildarvatnsmagn 50-400 milljón rúmmetrar og nálægt einum rúmkílómetra (1000 milljón m³) í minnstu Skeiðarárhlaupum. Í mestu Skeiðarárhlaupum, til dæmis 1934 eða 1938, runnu fram fjórir til fimm rúmkílómetrar.
Minna er vitað um heildarrennsli í Kötluhlaupum, en í þeim stærri virðist það nema nokkrum rúmkílómetrum. Munurinn á hámarksrennsli þeirra hlaupa og Skeiðarárhlaupa felst í hraðari vexti Kötluhlaupanna. Þau ná oftast hámarki og hjaðna á nokkrum klukkustundum. Skeiðarárhlaup standa yfirleitt í marga daga eða vikur.
Mynd:
Magnús Tumi Guðmundsson og Guðrún Larsen. „Hvernig eru jökulhlaup flokkuð eftir stærð?“ Vísindavefurinn, 6. október 2026, sótt 6. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89719.
Magnús Tumi Guðmundsson og Guðrún Larsen. (2026, 6. október). Hvernig eru jökulhlaup flokkuð eftir stærð? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89719
Magnús Tumi Guðmundsson og Guðrún Larsen. „Hvernig eru jökulhlaup flokkuð eftir stærð?“ Vísindavefurinn. 6. okt. 2026. Vefsíða. 6. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89719>.