Sólin Sólin Rís 09:04 • sest 17:17 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:50 • Síðdegis: 21:21 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:33 • Síðdegis: 15:13 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hefur það einhver áhrif á líkamann að borða geislaðan mat?

Eyjólfur Guðmundsson

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Ýmis matvara er geisluð, hvaða áhrif hefur það á líkamann að borða geislaðan mat?

Í stuttu máli sagt, þá hefur ekki verið sýnt fram á að geislun matvöru hafi í för með sér neikvæð áhrif á næringargildi eða gæði vörunnar umfram aðrar aðferðir sem eru notaðar til að sótthreinsa og bæta endingartíma matvæla, til dæmis frystun eða niðursuðu.

Í þessu svari lítum við til tvenns konar aðstæðna þar sem matur er geislaður. Annars vegar þegar geislun er notuð til að framkalla einhvers konar breytingar í matvælunum, yfirleitt til að bæta endingartíma þeirra, til dæmis við sótthreinsun, sem vörn gegn meindýrum og til að fresta þroska ávaxta og grænmetis. Hins vegar þegar geislun er notuð í gæðaeftirliti með matvælum, til dæmis við leit að beinum í fiski á færibandi. Fyrra notkunartilfellið felur í sér mun orkuríkari geislun og meira magn geislunar en geislun í gæðaeftirliti. Á Íslandi er aðeins heimilt að meðhöndla þurrkaðar kryddjurtir, krydd og grænmetiskrydd með orkuríkri geislun en engin slík starfsemi er til staðar hérlendis.[1]

Geislun matvæla felur yfirleitt í sér jónandi geislun (röntgengeislun, rafeindageislun, eða gammageislun frá geislavirkum efnum) en það er geislun sem er nægilega orkurík til að fjarlægja rafeindir af brautum atóma. Þegar efni verður fyrir jónandi geislun, þá flytur geislunin hluta af orku sinni til efnisins. Það er þekkt að jónandi geislun getur haft skaðleg áhrif á lífverur, meðal annars með því að valda skemmdum á DNA í kjarnfrumum sem getur leitt til skemmda á erfðaefni og krabbameins síðar á lífsleiðinni.

Ekki hefur verið sýnt fram á að geislun matvöru hafi í för með sér neikvæð áhrif á næringargildi eða gæði vörunnar umfram aðrar aðferðir sem eru notaðar til að sótthreinsa og bæta endingartíma matvæla.

Þegar geislun er notuð til sótthreinsunar matvæla þá er beitt nægilega háum geislaskammti til að valda varanlegum skemmdum á örverum í matnum, þar á meðal gerlum, myglusveppum, meindýrum og skordýrum. En matvælin sem verða fyrir röntgengeislun verða sjálf ekki geislavirk og því stafar engin geislahætta af þeim eftir geislunina. Aftur á móti verða matvælin öruggari til neyslu vegna sótthreinsandi áhrifa geislunarinnar. Geislunin veldur heldur ekki hitun á matvælunum að miklu marki og rannsóknir sýna að geislun hefur minni eða sambærileg áhrif á næringargildi matvæla en niðursuða og gerilsneyðing.

Þegar geislun er notuð í gæðaeftirliti með matvælum þá er röntgengeislun notuð til að framkalla mynd af innri gerð matvælanna, á sama hátt og þegar röntgenmyndir eru teknar af sjúklingum. Röntgengeislunin sem er notuð við þessar aðstæður er mun orkuminni en geislunin sem er notuð við sótthreinsun matvæla og geislastyrkurinn lægri. Allar ofangreindar ástæður fyrir því að geisluð matvæli eru örugg til neyslu, eiga því jafnframt við um þessa notkun geislunar í matvælaiðnaði.

Þess má geta að geislun hefur til langs tíma verið notuð til þess að sótthreinsa ýmsar neytenda- og lækningavörur, þar á meðal sprautur og einnota hanska. Einn af kostum geislunar við sótthreinsun er sú að hægt er að geisla innpakkaðar vörur og matvæli. Að lokum má nefna að útfjólublátt ljós, sem er orkurík geislun sem getur valdið skemmdum á erfðaefni lífvera, er notað til að eyða örverumengun í yfirborðsvatni hérlendis en lesa má nánar um það í svari við spurningunni Hvernig er ástand neysluvatns á Íslandi?

Tilvísun:
  1. ^ Samanber: 341/2001 – Reglugerð um geislun matvæla með jónandi geislun. (Sótt 28.10.2026).

Heimildir og myndir:

Höfundur

Eyjólfur Guðmundsson

læknisfræðilegur eðlisfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins og aðjúnkt við Háskóla Íslands

Útgáfudagur

30.10.2026

Spyrjandi

Linda Konráðsdóttir

Tilvísun

Eyjólfur Guðmundsson. „Hefur það einhver áhrif á líkamann að borða geislaðan mat?“ Vísindavefurinn, 30. október 2026, sótt 30. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89883.

Eyjólfur Guðmundsson. (2026, 30. október). Hefur það einhver áhrif á líkamann að borða geislaðan mat? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89883

Eyjólfur Guðmundsson. „Hefur það einhver áhrif á líkamann að borða geislaðan mat?“ Vísindavefurinn. 30. okt. 2026. Vefsíða. 30. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89883>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hefur það einhver áhrif á líkamann að borða geislaðan mat?
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Ýmis matvara er geisluð, hvaða áhrif hefur það á líkamann að borða geislaðan mat?

Í stuttu máli sagt, þá hefur ekki verið sýnt fram á að geislun matvöru hafi í för með sér neikvæð áhrif á næringargildi eða gæði vörunnar umfram aðrar aðferðir sem eru notaðar til að sótthreinsa og bæta endingartíma matvæla, til dæmis frystun eða niðursuðu.

Í þessu svari lítum við til tvenns konar aðstæðna þar sem matur er geislaður. Annars vegar þegar geislun er notuð til að framkalla einhvers konar breytingar í matvælunum, yfirleitt til að bæta endingartíma þeirra, til dæmis við sótthreinsun, sem vörn gegn meindýrum og til að fresta þroska ávaxta og grænmetis. Hins vegar þegar geislun er notuð í gæðaeftirliti með matvælum, til dæmis við leit að beinum í fiski á færibandi. Fyrra notkunartilfellið felur í sér mun orkuríkari geislun og meira magn geislunar en geislun í gæðaeftirliti. Á Íslandi er aðeins heimilt að meðhöndla þurrkaðar kryddjurtir, krydd og grænmetiskrydd með orkuríkri geislun en engin slík starfsemi er til staðar hérlendis.[1]

Geislun matvæla felur yfirleitt í sér jónandi geislun (röntgengeislun, rafeindageislun, eða gammageislun frá geislavirkum efnum) en það er geislun sem er nægilega orkurík til að fjarlægja rafeindir af brautum atóma. Þegar efni verður fyrir jónandi geislun, þá flytur geislunin hluta af orku sinni til efnisins. Það er þekkt að jónandi geislun getur haft skaðleg áhrif á lífverur, meðal annars með því að valda skemmdum á DNA í kjarnfrumum sem getur leitt til skemmda á erfðaefni og krabbameins síðar á lífsleiðinni.

Ekki hefur verið sýnt fram á að geislun matvöru hafi í för með sér neikvæð áhrif á næringargildi eða gæði vörunnar umfram aðrar aðferðir sem eru notaðar til að sótthreinsa og bæta endingartíma matvæla.

Ekki hefur verið sýnt fram á að geislun matvöru hafi í för með sér neikvæð áhrif á næringargildi eða gæði vörunnar umfram aðrar aðferðir sem eru notaðar til að sótthreinsa og bæta endingartíma matvæla.

Þegar geislun er notuð til sótthreinsunar matvæla þá er beitt nægilega háum geislaskammti til að valda varanlegum skemmdum á örverum í matnum, þar á meðal gerlum, myglusveppum, meindýrum og skordýrum. En matvælin sem verða fyrir röntgengeislun verða sjálf ekki geislavirk og því stafar engin geislahætta af þeim eftir geislunina. Aftur á móti verða matvælin öruggari til neyslu vegna sótthreinsandi áhrifa geislunarinnar. Geislunin veldur heldur ekki hitun á matvælunum að miklu marki og rannsóknir sýna að geislun hefur minni eða sambærileg áhrif á næringargildi matvæla en niðursuða og gerilsneyðing.

Þegar geislun er notuð í gæðaeftirliti með matvælum þá er röntgengeislun notuð til að framkalla mynd af innri gerð matvælanna, á sama hátt og þegar röntgenmyndir eru teknar af sjúklingum. Röntgengeislunin sem er notuð við þessar aðstæður er mun orkuminni en geislunin sem er notuð við sótthreinsun matvæla og geislastyrkurinn lægri. Allar ofangreindar ástæður fyrir því að geisluð matvæli eru örugg til neyslu, eiga því jafnframt við um þessa notkun geislunar í matvælaiðnaði.

Þess má geta að geislun hefur til langs tíma verið notuð til þess að sótthreinsa ýmsar neytenda- og lækningavörur, þar á meðal sprautur og einnota hanska. Einn af kostum geislunar við sótthreinsun er sú að hægt er að geisla innpakkaðar vörur og matvæli. Að lokum má nefna að útfjólublátt ljós, sem er orkurík geislun sem getur valdið skemmdum á erfðaefni lífvera, er notað til að eyða örverumengun í yfirborðsvatni hérlendis en lesa má nánar um það í svari við spurningunni Hvernig er ástand neysluvatns á Íslandi?

Tilvísun:
  1. ^ Samanber: 341/2001 – Reglugerð um geislun matvæla með jónandi geislun. (Sótt 28.10.2026).

Heimildir og myndir:...