Sólin Sólin Rís 10:25 • sest 16:04 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 14:01 • Sest 11:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 05:39 • Síðdegis: 18:00 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:58 • Síðdegis: 24:10 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver gæti verið skýringin á því að Grænland, sem að mestu er hulið ís, fékk þetta heiti?

Orri Vésteinsson

Lengi hefur verið talið að nafn Grænlands væri rangnefni eins og kemur fram í svarinu Af hverju heitir Ísland ekki Grænland og Grænland þá Ísland? Þar er bent á að nafnið Ísland var þegar komið í notkun þegar Grænland fannst þannig að ekki gekk að kenna nýja landið við ís þó það hefði vissulega verið betri lýsing.

Ein elsta heimildin um nafn Grænlands er Íslendingabók Ara fróða sem hann skrifaði um 1130. Ari segir frá Eiríki rauða, breiðfirskum manni sem fór til Grænlands af Íslandi og nam land í Eiríksfirði: „Hann gaf nafn landinu og kallaði Grænland og kvað menn það myndu fýsa þangað farar, að landið ætti nafn gott.“ (Íslenzk fornrit I, 13). Eiríkur á að hafa numið land á Grænlandi um 985 og fyrir því hafði Ari góða heimild: Þorkell Gellisson föðurbróður hans hafði farið til Grænlands sem ungur maður og talað þar við mann sem hafði siglt með Eiríki.

Sú skýring að Eiríkur hafi valið nafnið Grænland í auglýsinga- og áróðursskyni er greinilega mjög gömul.

Ástæðan fyrir því að sú grunsemd vaknaði snemma er að það er vel þekkt að Grænland einkennist ekki beinlínis af græna litnum. Það blasir við okkur sem þekkjum það helst af kortum og loftmyndum, en það hefur líka verið vel þekkt meðal sjófarenda á miðöldum sem sáu landið af hafi: Grænland einkennist af jöklinum og gróðurlausum fjöllum.

Grænt land.  Birki- og víðikjarr í Vatnahverfi í Eystribyggð á Grænlandi.

Rímnaskáldið Sigurður Breiðfjörð vann á Grænlandi á árunum 1831 til 1834 og honum fannst landið “ekki allfagurt, og meigi fremur kalla grátt en grænt.” Sigurður bjó í Maniitsoq, á vesturströnd Grænlands norðan við Nuuk, en hann fór líka til Suðurgrænlands og lýsir þar minjum um miðaldabyggð lengst inni í djúpum firði: “Fjørdurinn er næsta mikill, og umhverfis grænar hlíðar. Hafa menn gjetið til, ad þetta væri Eiríksfjørdur, og muni landinu nafn gjefid eptir hinum grænu skógarhlídum, er alsstadar blasa þar vid; því ekki er þad vídar á Grænlandi.” (Sigurður Breiðfjörð 1836, s. 9 og 35).

Um þennan mun, á gróðursnauðum annnesjum og iðjagrænum innfjörðum, hefur fólki orðið tíðrætt enda er hann mikill og eftirtektarverður.

Straumur af hlýjum sjó liggur upp með vesturströnd Grænlands og veldur því að þar er yfirhöfuð byggilegt en strandlengjan er engu að síður hrjóstrug og gróðursnauð vegna hafísa, votviðris og sólarleysis sem af því stafar. Þar sem firðir með láglendi skerast langt inn í landið nýtur hins vegar hlýjunnar betur og þar er yfirhöfuð skjólbetra, þurrara og sólríkara en úti við ströndina. Óvíða eru jafn skörp skil milli úthafsloftslags og meginlandsloftslags en á Grænlandi en það er meginlandsloftslagið lengst frá fjarðarmynnunum og næst jöklinum sem veldur því að undirlendið þar er grasi- og skógivaxið. Munurinn sést vel á hitatölunum: í Qaqortoq úti við ströndina er meðalárshiti 0,6°C en í Narsarsuaq inn við botn Tunulliarfik (Eiríksfjarðar, handan fjarðar frá Qassiarsuk, Brattahlíð) er meðalárshitinn ívið hærri eða 0,9°C. Miklu meiri munur er þó á árssveiflunni: í Qaqortoq er hún frá -5,5° C (janúar) til 7,2° C (júlí) en í Narsarsuaq frá -6,8° C (janúar) til 10,3° C (júlí) (meðaltöl áranna 1960-90 – Box 2002). Munurinn á mesta og minnsta hita ársins er 17,1°C í innfjörðum en 12,7°C á annnesjum, og munurinn á sumarhita meiri en 3°C – og það er allur munur á hvort skilyrði eru til landbúnaðar eða ekki.

Kortið sýnir þéttleika miðaldabyggðar í Eystribyggð á Grænlandi.  Byggðin er þéttust næst jöklinum og fjærst ströndinni.

Við getum reynt að setja okkur í spor landkönnuða á seinni hluta 10. aldar sem komu frá Íslandi, og sigldu fyrst suður með austurströnd Grænlands – þar sem varla finnst stingandi strá – og síðan fyrir Hvarf og tóku þá fljótlega að sjá breytingar á gróðurfarinu, frá því gráa yfir í dálítið grænt. En þá fyrst varð munurinn verulegur þegar þeir sigldu inn eftir fjörðunum löngu og sáu sífellt meiri og þéttari gróður, grasi vaxnar fjallshlíðar og stæðilegan birkiskóg í skjólsælum dal- og fjarðarbotnum. Það er auðvelt að skilja að hjörtu fjárbænda hafi farið að slá hraðar við slíka sjón. Landið var bara býsna grænt eftir allt saman!

Allt er afstætt og gróðursældin í hinum djúpu fjörðum Grænlands jafnast í besta falli á við Vestfirði á Íslandi, en andstæðan við alla aðra hluta Grænlands er skörp. Byggðarlög miðaldabænda, Eystribyggð og Vestribyggð eru eins og vinjar, og það sem einkennir þau er gróðursældin – græni liturinn – sem er sannarlega ekki einkenni á neinu öðru á Grænlandi.

Sagan um Eirík er góð og þó við getum ekki vitað hvort nafngiftin kom til nákvæmlega eins og Ari lýsir getum við vel skilið að hún er ekki alveg úr lausu lofti gripin. Nafnið er ekki lýsing á landinu í heild (fremur en nafn Íslands ef út í það er farið) en lýsir vel þeim fáu stöðum sem eru byggilegir fólki sem vill stunda landbúnað.

Tilvísanir:
  • Box, J. E. 2002 ‘Survey of Greenland instrumental temperature records: 1973-2001.’ International Journal of Climatology 22,1829-47.
  • Íslenzk fornrit I. Íslendingabók. Landnámabók, Jakob Benediktsson gaf út, Reykjavík: Hið íslenzka fornritafélag.
  • Sigurður Breiðfjörð 1836, Frá Grænlandi, Kaupmannahöfn, bls. 9 og 35.

Myndir:
  • Yfirlitsmynd: Greenland ice loss much faster than expected. (Sótt 23.11.2026).
  • Christian K. Madsen, Þjóðminjasafnið í Nuuk. Tekið úr: Kujataa – a subarctic farming landscape in Greenland. A nomination to UNESCO´s World Heritage List,
  • Nuuk 2016, bls. 104.
  • Kort tekið úr: Keller, Christian 1991, ‘Vikings in the West Atlantic: A Model of Norse Greenlandic Medieval Society.’ Acta Archaeologica 61, 126-41, mynd á bls. 131.

Höfundur

Orri Vésteinsson

prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands

Útgáfudagur

24.11.2026

Spyrjandi

Ásta

Tilvísun

Orri Vésteinsson. „Hver gæti verið skýringin á því að Grænland, sem að mestu er hulið ís, fékk þetta heiti?“ Vísindavefurinn, 24. nóvember 2026, sótt 24. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89925.

Orri Vésteinsson. (2026, 24. nóvember). Hver gæti verið skýringin á því að Grænland, sem að mestu er hulið ís, fékk þetta heiti? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89925

Orri Vésteinsson. „Hver gæti verið skýringin á því að Grænland, sem að mestu er hulið ís, fékk þetta heiti?“ Vísindavefurinn. 24. nóv. 2026. Vefsíða. 24. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89925>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...