Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Af hverju heita vísindi þessu nafni?

Guðrún Kvaran

Orðið vísindi er leitt af lýsingarorðinu vís í merkingunni ‛vitur, sem hefur þekkingu til að bera’. Síðari liðurinn -indi er viðskeyti einkum notað til að mynda nafnorð af lýsingarorðum, til dæmis sannindi af sannur, heilindi af heill, harðindi af harður, rangindi af rangur.

Orðið vísindi er leitt af lýsingarorðinu vís í merkingunni vitur.

Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:421) er viðskeytið upphaflega germanskur viðliður *-wandia- sem dreginn var af sögninni *wandian ‛snúa, venda’ og merkti ‛lútandi að einhverju’. Í dæmunum hér að ofan: lútandi að því sem er satt, heilt, hart, rangt, víst.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

23.1.2013

Spyrjandi

Margrét Lára Baldursdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju heita vísindi þessu nafni?“ Vísindavefurinn, 23. janúar 2013. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=63771.

Guðrún Kvaran. (2013, 23. janúar). Af hverju heita vísindi þessu nafni? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=63771

Guðrún Kvaran. „Af hverju heita vísindi þessu nafni?“ Vísindavefurinn. 23. jan. 2013. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=63771>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar