Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaðan kemur r-ið í orðinu „lánardrottinn“? Ætti það ekki að vera „lánadrottinn“, eða jafnvel „lánsdrottinn“?

Guðrún Kvaran

Upprunalega spurningin var svona:
Hvaðan kemur R-ið í orðinu „lánardrottinn“? Samkvæmt Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls, er bókstafinn R hvergi að finna í beygingu orðsins „lán“ . Hvernig stendur þá á að þetta er komi upp þarna í orðinu „lánardrottinn“? Ætti það ekki að vera „lánadrottinn“, eða jafnvel „lánsdrottinn“?

Í íslensku er algengast að samsetningar séu annaðhvort stofnsamsetningar, öðru nafni fast samsett orð, eða eignarfallssamsetningar, öðru nafni laust samsett orð. Dæmi um stofnsamsetningar eru: snjóbretti (snjó = stofn), bílstóll (bíl = stofn). Dæmi um eignarfallssamsetningar eru: barnsgrátur (barns = eignarfall), fundargerð (fundar = eignarfall).

Ein gerð bandstafssamsetninga er með stafnum -r en hann er notaður mjög sjaldan.

Til þriðju gerðar samsetninga teljast bandstafssamsetningar. Þá eru samsetningarliðir tengdir með sérstökum bandstaf (tengistaf). Þeir eru -a-, -i-, -u- eða -s-: ruslafata, skellihlátur, ökumaður, keppnisgrein. Enn einn bandstafur er notaður en mjög sjaldan. Þar er um að ræða -r- eins og í landareign og lánardrottinn. Hvorki er -r- í beygingu orðsins landlán.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

5.2.2014

Spyrjandi

Andri Hugo Runólfsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur r-ið í orðinu „lánardrottinn“? Ætti það ekki að vera „lánadrottinn“, eða jafnvel „lánsdrottinn“?“ Vísindavefurinn, 5. febrúar 2014. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=66291.

Guðrún Kvaran. (2014, 5. febrúar). Hvaðan kemur r-ið í orðinu „lánardrottinn“? Ætti það ekki að vera „lánadrottinn“, eða jafnvel „lánsdrottinn“? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=66291

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur r-ið í orðinu „lánardrottinn“? Ætti það ekki að vera „lánadrottinn“, eða jafnvel „lánsdrottinn“?“ Vísindavefurinn. 5. feb. 2014. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=66291>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...