Spurning
Hvað er rekill eða driver í tölvum og hvaða hlutverki gegnir hann?
Spyrjandi
Yngvi Guðnason
Svar
![]() |
Fjölmargir reklar eru til staðar í stýrikerfi tölvunnar. Þegar nýr hlutur er tengdur við tölvu spyr tölvan stundum um rekla; þetta gerist vegna þess að stýrikerfið kannast ekki við vélbúnaðinn og veit ekki hvernig á að nota hann. Þá þarf að hjálpa tölvunni með því að sækja rekla af Netinu eða með því að gefa tölvunni geisladisk sem inniheldur réttan rekil.
Mynd:
- How exercise I include a USB machine into the PC if I am external of slots. (Sótt 25.04.2012).
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur25.4.2012
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Stefán Þorvarðarson. „Hvað er rekill eða driver í tölvum og hvaða hlutverki gegnir hann?“. Vísindavefurinn 25.4.2012. http://visindavefur.is/?id=53964. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
Stefán Þorvarðarsontölvunarfræðingur






