Sólin Sólin Rís 06:46 • sest 20:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 20:08 • Sest 06:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:02 • Síðdegis: 18:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 12:16 • Síðdegis: 24:32 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða móðu er átt við þegar einhver fer yfir móðuna miklu?

Guðrún Kvaran

Upprunalega spurninginn hljóðaði svona:

Hvaðan kemur orðasambandið 'að fara yfir móðuna miklu'? Hvaða móðu er verið að vísa í?

Orðið móða merkir ‘fljót, á’ og þekkist þegar í fornu máli. Að fara yfir móðuna miklu merkir að ‘deyja’. Algengara er orðasambandið að ferja einhvern yfir móðuna miklu. Það á rætur í þeirri fornu trú að móða mikil sé á mótum ríkis lifenda og látinna.

Í Eddu Snorra Surlusonar frá 13. öld eru taldar upp ár sem falla úr brunninum Hvergelmi. Þær eru ellefu og sú síðasta í upptalningunni er Gjöll. Þar stendur: „Gjöll er næst helgrindum.“ (1954: 14). Helgrind er grindin fyrir hliði Heljar.

Sama trú var hjá fleiri þjóðum. Hjá Grikkjum var áin Styx til dæmis á mörkum ríkis þeirra lifandi og þeirra látnu. Þegar einhver lést þurfti að flytja anda hans yfir Styx á báti sem ferjumaðurinn Karon reri.

Heimild og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

1.4.2026

Spyrjandi

Esther

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða móðu er átt við þegar einhver fer yfir móðuna miklu?“ Vísindavefurinn, 1. apríl 2026, sótt 1. apríl 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=87962.

Guðrún Kvaran. (2026, 1. apríl). Hvaða móðu er átt við þegar einhver fer yfir móðuna miklu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87962

Guðrún Kvaran. „Hvaða móðu er átt við þegar einhver fer yfir móðuna miklu?“ Vísindavefurinn. 1. apr. 2026. Vefsíða. 1. apr. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87962>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...