Sólin Sólin Rís 08:42 • sest 18:40 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:50 • Síðdegis: 15:41 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:32 • Síðdegis: 21:52 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvernig fara pöddur og skordýr að því að ganga upp lóðrétta veggi?

Jón Már Halldórsson

Skordýr eru þekkt fyrir þann hæfileika að ganga upp lóðréttan flöt. Meðal þeirra hafa þróast nokkrar lausnir sem gera lóðrétta göngu mögulega. Ein leiðin er að nota litlar klær sem þau hafa á fótunum en með þeim má halda sér uppi með því að krækja í ójöfnur á yfirborði, til dæmis á trjástofnum, grjóti eða málningu sem ekki er alveg slétt. Þessi lausn finnst meðal annars hjá járnsmiðum, keppum og fleiri tegundum bjalla.

Önnur aðferð sem er mjög útbreidd í skordýraheiminum byggir á púðum á fótum sem seyta límkenndum vökva. Vökvinn virkar eins og lím og gerir þessum dýrum kleift að ganga á sléttum veggjum og jafnvel í lofti. Tegundir sem nýta sér þessa „tækni“ eru meðal annars flugur og maurar.

Þriðja aðferðin sem finnst meðal skordýra er hagnýting svokallaðra kraftar van der Waals, en það eru veikir kraftar milli sameinda sem valda samloðun við yfirborð. Sum skordýr hafa púða á fótum sínum sem þaktir eru örfínum og mjög þéttum hárum. Kraftar van der Waals sem verka á milli þessara hára og yfirborðsins gera skordýrum kleift að loða við lóðréttan flöt og halda sér uppi.

Sum skordýr nýta sér litlar klær sem þau hafa á fótunum til að ganga lóðrétt. Hér er smásjármynd af fót á ávaxtaflugu.

Gangtækni skordýra hjálpar einnig. Skordýr hafa sex fætur en við gang lyfta þau að jafnaði aðeins þremur fótum fram en hinir halda dýrunum á fletinum.

Þegar skordýr deyr má segja að það slokkni á þessum ferlum. Meðal annars slaknar á vöðvum og seyti á límkenndum vökvanum stöðvast og dýrið fellur til jarðar. Stundum veldur dauðastjarfi þó því að dýrið getur hangið á lóðréttum fletinum í einhvern tíma áður en það fellur niður.

Heimildir og myndir:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

27.2.2026

Spyrjandi

Örn

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvernig fara pöddur og skordýr að því að ganga upp lóðrétta veggi?“ Vísindavefurinn, 27. febrúar 2026, sótt 27. febrúar 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88012.

Jón Már Halldórsson. (2026, 27. febrúar). Hvernig fara pöddur og skordýr að því að ganga upp lóðrétta veggi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88012

Jón Már Halldórsson. „Hvernig fara pöddur og skordýr að því að ganga upp lóðrétta veggi?“ Vísindavefurinn. 27. feb. 2026. Vefsíða. 27. feb. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88012>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvernig fara pöddur og skordýr að því að ganga upp lóðrétta veggi?
Skordýr eru þekkt fyrir þann hæfileika að ganga upp lóðréttan flöt. Meðal þeirra hafa þróast nokkrar lausnir sem gera lóðrétta göngu mögulega. Ein leiðin er að nota litlar klær sem þau hafa á fótunum en með þeim má halda sér uppi með því að krækja í ójöfnur á yfirborði, til dæmis á trjástofnum, grjóti eða málningu sem ekki er alveg slétt. Þessi lausn finnst meðal annars hjá járnsmiðum, keppum og fleiri tegundum bjalla.

Önnur aðferð sem er mjög útbreidd í skordýraheiminum byggir á púðum á fótum sem seyta límkenndum vökva. Vökvinn virkar eins og lím og gerir þessum dýrum kleift að ganga á sléttum veggjum og jafnvel í lofti. Tegundir sem nýta sér þessa „tækni“ eru meðal annars flugur og maurar.

Þriðja aðferðin sem finnst meðal skordýra er hagnýting svokallaðra kraftar van der Waals, en það eru veikir kraftar milli sameinda sem valda samloðun við yfirborð. Sum skordýr hafa púða á fótum sínum sem þaktir eru örfínum og mjög þéttum hárum. Kraftar van der Waals sem verka á milli þessara hára og yfirborðsins gera skordýrum kleift að loða við lóðréttan flöt og halda sér uppi.

Sum skordýr nýta sér litlar klær sem þau hafa á fótunum til að ganga lóðrétt. Hér er smásjármynd af fót á ávaxtaflugu.

Sum skordýr nýta sér litlar klær sem þau hafa á fótunum til að ganga lóðrétt. Hér er smásjármynd af fót á ávaxtaflugu.

Gangtækni skordýra hjálpar einnig. Skordýr hafa sex fætur en við gang lyfta þau að jafnaði aðeins þremur fótum fram en hinir halda dýrunum á fletinum.

Þegar skordýr deyr má segja að það slokkni á þessum ferlum. Meðal annars slaknar á vöðvum og seyti á límkenndum vökvanum stöðvast og dýrið fellur til jarðar. Stundum veldur dauðastjarfi þó því að dýrið getur hangið á lóðréttum fletinum í einhvern tíma áður en það fellur niður.

Heimildir og myndir:...