Þetta er góð spurning og varðar grundvallaratriði í stjarnvísindum því að fjarlægð stjarna og vetrarbrauta skiptir að sjálfsögðu sköpum þegar menn meta mikilvæga eiginleika þeirra, svo sem raunverulega birtu. Í stuttu máli má segja að menn beiti mjög mismunandi aðferðum við þetta eftir því hver fjarlægðin er. Það ...
Þessi spurning gefur tilefni til að taka á málum sem margir átta sig ekki á til hlítar. Er þá einkum átt við nákvæmni í tölum og talnameðferð og hvernig hún helst í hendur við eðli máls og aðstæður allar hverju sinni.
Míkrómetrinn er skammstafaður µm, þar sem µ er gríski bókstafurinn mý. Einn µm er milljónasti ...
Upprunalegu spurningarnar hljóðuðu svona:
Hvaða ár kemur næst eldgos? Eru væntanleg eldgos á Íslandi?
Eldgos gera oft og tíðum boð á undan sér. Aukin jarðskjálftavirkni, landris og breytingar á jarðhita og gasútstreymi eru alltíðir fyrirboðar eldgosa. Ekkert er þó algilt í því efni.
Sum eldfjöll gjósa á...
Nákvæmnismælingar á hreyfingum jarðskorpunnar er meginþema í rannsóknum Freysteins. Með því að mæla hreyfingar með millimetra og sentímetra nákvæmni má til dæmis sjá hvernig flekarek teygir á landinu okkar þannig að Austurland færist frá Vesturlandi á svipuðum hraða og neglur vaxa (19 mm/ári), hvernig mest allt la...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvað er barómetermælir og hvernig les maður úr þessum tveim vísum sem er í mælinum og af hverju heitir þetta barómeter?
Loftvog er samheiti yfir tæki sem notuð eru til þess að mæla þrýsting loftsins. Neðstu loftlög hvíla undir þeim sem ofar liggja, hin efri þjappa hinum neðri s...
Í árslok 2009 tók land að rísa við Eyjafjallajökul og í kjölfarið jókst jarðskjálftavirkni verulega. Í lok febrúar færðist landris í aukana, og í byrjun mars margfaldaðist jarðskjálftavirknin. Almannavarnir, í samstarfi við vísindamenn, ákváðu þá að setja á lægsta stig viðvörunar vegna hættu á eldgosi í Eyjafjalla...
Surtsey myndaðist í eldgosi sem hófst á sjávarbotni 1963 og stóð yfir með hléum til 1967. Vísindamönnum varð snemma ljóst að myndun eyjunnar gaf ekki aðeins einstakt tækifæri til að rannsaka virka jarðfræðilega ferla heldur einnig landnám lífríkis á nýju landi.
Grannt hefur verið fylgst með landnámi tegunda all...
Svarið við fyrri spurningunni er nei: Það er ekki hægt að eyða rafsegulbylgjum inni í húsi með tóli sem grafið er í jörð úti í garði. Hins vegar er vel hægt að eyða rafsegulbylgjum af tilteknum tegundum með því að útbúa húsið sjálft með viðeigandi hætti sem lýst er í svarinu. Svarið við seinni spurningunni er líka...
Fjórða iðnbyltingin er hugtak sem vísar til tækniframfara undanfarinn ára og þeirra sem eru í vændum. Þar er aðallega átt við gervigreind, róbótatækni, sjálfkeyrandi bíla, Internet hlutanna (Internet of Things, IoT), sjálfvirknivæðingu og fleira sem mun líklega valda víðtækum samfélagsbreytingum á næstu árum og ár...
Veðurstofa Íslands hefur starfrækt landsnet stafrænna jarðskjálftamæla síðan 1990. Það tók við af neti hliðrænna mæla sem Raunvísindastofnun Háskóla Íslands sá um. Veðurstofan hefur rekið jarðskjálftamæla í Reykjavík allt frá árinu 1925. Á árunum 1954 til 1968 varð fyrsta landsnetið smám saman til með stöðvum á Ak...
Okkur kann að finnast að spegilsléttur sjávarflöturinn sé algjörlega láréttur. Meðalsjávarborð liggur hins vegar nærri því sem kallast jafnmættisflötur í þyngdarsviði jarðar. Oft er talað um jörðina eins og hún sé kúlulaga hnöttur, en hún er í raun sporvölulaga, aðeins breiðari um sig um miðbaug en pólana. Jafnmæ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!