Þriðjudaginn 8. október 2013 tilkynnti Nóbelsstofnunin að Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði fyrir 2013 hefðu verið veitt þeim François Englert (frb. frangsúa angleer) prófessor emeritus við Frjálsa háskólann í Brussel (f. 1932) og Peter W. Higgs prófessor emeritus við Háskólann í Edinborg (f. 1929). Verðlaunin eru vei...
Higgs-bóseindin er ein af þeim öreindum sem mynda hið viðtekna líkan öreindafræðinnar (e. the standard model), rétt eins og ljóseindir, rafeindir og kvarkar. Ólíkt rafeindum og kvörkum hefur Higgs-bóseindin þó aldrei sést í tilraunum og því er strangt til tekið ekki víst að hún sé til!
Öllum öreindum má s...
Eins og kemur fram í svari við spurningunni hvort tilraunir Evrópsku rannsóknamiðstöðvarinnar í öreindafræði (CERN) með stóra sterkeindahraðlinum (e. Large Hadron Collider) ógni tilvist heimsins þá setti fjöldi fólks fram tilgátur um mögulegar hamfarir í kjölfar tilraunanna. Má fræðast um tilgang þeirra í merkri b...
Upprunalega spurningin var:
Það er ný kenning sem hræðir mig um false vacuum, er það satt eða ósatt?
Hrörnun svonefnds Higgs-sviðs einhvers staðar í alheiminum hefði í för með sér að örsmátt, nærri kúlulaga svæði myndi stækka á ljóshraða í allar áttir. Þessi kúla myndi taka yfir sólkerfi okkar á nokkrum klu...
Eins og kom fram í niðurlagi svars við spurningunni Ef ég diffra vin minn og tegra hann svo, verður hann þá með fasta C eftir tegrunina? Þá laumaði heimspekingurinn svari við þessari spurningu að sumarstarfsmanni Vísindavefsins.
Eins og gengur og gerist með heimspekinga fékk sumarstarfsmaðurinn tvö svör við spu...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvað er eind? Og hver er þá munurinn á t.d nifteind, róteind, frumeind? Þá aðeins "eind"?
Hugtökin ögn og eind eru notuð yfir enska orðið particle. Í daglegur tali er orðið ögn notað um eitthvað smátt fyrirbæri eða örlítið magn af einhverju. Við tölum til dæmis um að eitthvað ...
Frumeindir (af sama eða mismunandi toga) geta tengst öðrum frumeindum með efnatengjum (e. chemical bonds). Þrjár helstu tegundir þeirra eru samgild tengi, jónatengi og málmtengi.
Samgild tengi (e. covalent bonds) er að finna í sameindum (e. molecules) og deila þá frumeindirnar með sér tengirafeindunum sem eru v...
Óvíst er að lesandinn telji sig miklu nær þó að við segjum að jáeindin (e. positron) sé, eftir því sem best er vitað, andeind rafeindarinnar. En í því felst meðal annars að:
jáeindin er öreind (e. elementary particle), ekki samsett úr öðrum (smærri) eindum.
hún er létteind (e. lepton), sem þýðir að hún tek...
Öreindir (e. elementary particles) eru örsmáar einingar sem allt efni í heiminum er sett saman úr. Borðið í kennslustofunni, Esjan, tunglið, sólin, vatnið og þú, allt er þetta búið til úr öreindum. Öreindir eru ódeilanlegar einingar, það er að segja ekki samsettar úr öðrum ögnum.
Vísindamenn rannsaka öreindir í ó...
Í heilanum eru kerfi samtengdra taugafrumna sem nefnast einu nafni tauganet (e. neural networks). Hægt er að lesa um virkni taugafrumna í svari Heiðu Maríu Sigurðardóttur við spurningunni Hvað eru taugaboð og hvernig verka þau? og í svarinu Geturðu útskýrt fyrir mér boðspennu í frumum? eftir Jón Má Halldórsson.
...
Rafeindir, róteindir, nifteindir og fleiri kunnar öreindir hafa tiltekna eiginleika sem gera það að verkum að hægt er að segja fyrir um það með hjálp afstæðiskenningarinnar að þær hljóti að eiga sér andeindir. Sú forsögn hefur síðan verið staðfest í tilraunum og athugunum. Ljóseindin og nokkrar fleiri öreindir sem...
Alsameinaðar sviðskenningar (e. grand unified theories, GUT) ganga út á að sameina þrjár af fjórum víxlverkunum í náttúrunni í eina kenningu. Þær eru veika og sterka víxlverkunin auk rafsegulvíxlverkunarinnar.
Snemma á nítjándu öld var talið að rafmagn og segulmagn væru ótengd fyrirbæri; annað hefði eit...
Spurningin í heild var upphaflega sem hér segir:Hver er Bells-reglan (Bell's theorem). Er hægt að nýta hana til að afsanna allar óraunverulegar veraldir fyrir utan þá sem við skynjum daglega, t.d. draumheima og aðra ,,andaheima"?Árið 1935 gaf Albert Einstein út grein ásamt tveimur starfsfélögum sínum, þar sem þeir...
Upphafleg spurning var sem hér segir:Stöðvast hreyfingar í sameindum (til dæmis hreyfingar rafeinda) ef efni er kælt niður í alkul? Ef ekki, hvað myndi þá koma fyrir efni ef þessar hreyfingar stöðvuðust alveg?Rétt er að hafa í huga að alkuli er ekki hægt að ná í tilraunum, en hægt er að nálgast það betur og betur....
Upp úr 1970 lagði stjarneðlisfræðingurinn Stephen Hawking á grundvelli skammtafræðinnar fram kenningar um að svarthol sendi frá sér geislun. Í reynd geislar svartholið sjálft ekki frá sér efni, enda gengi það þvert á skilgreininguna á svartholi, heldur kemur geislunin frá svæðinu rétt utan við hinn svokallaða sjón...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!