Leit á vefnum

Niðurstöður leitar - 5 svör fundust

category-iconJarðvísindi

Hvað eru steinkol og til hvers eru þau notuð?

Steinkol myndast úr leifum ferskvatnsplantna sem grafist hafa í jörð. Það umhverfi sem helst leiðir til kolamyndunar er votlendi þéttvaxið trjám og öðrum gróðri. Trjábolir, greinar, lauf og könglar falla í vatnið, verða vatnsósa og sökkva. Þá einangrast viðurinn frá súrefni andrúmsloftsins en bakteríur halda áfram...

category-iconJarðvísindi

Hvað er surtarbrandur?

Surtarbrandur er leifar fornra skóga, kolaðir jurtasteingervingar sem finnast samanpressaðir milli hraunlaga í íslensku blágrýtismynduninni, sérstaklega á Vestfjarðakjálkanum. Venjulega er brandurinn svartur, stundum svartgljáandi og svipar nokkuð til steinkola. Jurtaefnið er ýmist trjálauf eða trjábolir og greina...

category-iconJarðvísindi

Hvað er mór og hvernig myndast hann?

Mór er jarðlag úr jurtaleifum sem myndast hefur í votlendi og hægt er að nota sem eldsneyti. Í bók Þorleifs Einarssonar Myndun og mótun lands (1991, bls. 195) er stuttlega fjallað um mó. Þar segir: Á hverju hausti falla jurtir og visna. Á þurrlendi rotna plöntuleifarnar og blandast smám saman jarðveginum, en í mý...

category-iconJarðvísindi

Hvernig eru kol til að teikna með búin til?

Kol eru rík af frumefninu kolefni og eru fyrirtakseldsneyti þar sem þau brenna vanalega vel. Hefðbundin kol kallast einnig steinkol eða náttúruleg kol þar sem þau myndast í náttúrunni úr jurtaleifum við súrefnissnauðar aðstæður, til dæmis í mýrum og fenjum. Ummyndun jurtaleifanna í kol tekur milljónir ára og þarfn...

category-iconEfnafræði

Finnst grafít á Íslandi?

Grafít (e. graphite) er annað af tveimur kristalformum kolefnis (C), hitt er demantur. Á kvarða Mohs fyrir hörku steinda er grafít mýkst, harka < 1, en demantur harðastur, harka 10. Þetta stafar af grindbyggingu steindanna tveggja, það er hvernig kolefniseindirnar raðast og tengjast saman í kristalnum (sjá mynd hé...

Fleiri niðurstöður