
Surtarbrandur er leifar fornra skóga, kolaðir jurtasteingervingar sem finnast samanpressaðir milli hraunlaga í íslensku blágrýtismynduninni.
Surtarbrandurinn liggur undir efstu klettalögunum í tveggja feta þykku lagi. Hann er líkur horni að samsetningu, svartur, seigur og háll og tekur fágun líkt og tinnuviður (ibenholt). Hann er þyngri en eik og slíkar fastar trjátegundir, og auðvelt er að kljúfa hann, hefla og saga. Hann þolir hvorki þurrk né áhrif loftsins því ef hann nær að þorna ofanjarðar, sundrast hann í ótal trefjar sem skiljast hver frá annarri. Hins vegar geymist hann ágæta vel í raka og fúnar alls ekki.Surtarbrandsgili lýsir Eggert svo (#579, s.241):
Í hlíðum gilsins eru regluleg, lárétt hamrabelti sem þó eru ólík bæði að efni og þykkt. … Milli hinna eiginlegu hamralaga eru lög af brúnleitu móbergi eða sandsteini sem er lítið eitt leirblandinn. Surtarbrandurinn sést alllangt að vegna hins gljásvarta litar hans. Hann er aðallega í fjórum lögum, hverju upp af öðru. … Þau koma í ljós á 126 feta löngu svæði, en eru misþykk, eða 2, 3, og 4 fet á þykkt. … Neðstu lögin tvö eru minnst steinrunnin og blönduð aðkomuefnum … Molar þeir, sem hrunið hafa niður, eru ekki einungis stökkir, heldur hafa þeir klofnað í óteljandi þunnar og sveigjanlegar flísar af áhrifum lofts og sólar. … Rétt undir næstefsta surtarbrandslaginu er þverhandarþykkt flögusteinslag, grátt á lit. Það klofnar í þunnar flögur, sem eru allt að ½ þumlungur á þykkt, en stundum þó ekki nema 2–3 línur.[3] Þetta er mjúk steintegund, sem skapazt hefir af gróðurmold (Terra vegetabilis). Á milli flagnanna er krökkt af hinum kunnu steinblöðum (Lithophyller), sem er trjálauf er drukkið hefur í sig steinvökva. Sum þeirra eru lítið steinrunnin, og er þar unnt að greina birki-, reyniviðar- og víðiblöð, og auk þess finnast bæði lófastór blöð sem líkjast helzt eikarblöðum, og einnig grófgerð för eftir þau í steininum. Þessi steingerðu blöð með öllum rifjum sínum, smátaugum og öðrum plöntuskapnaði halda enn eðlilegri lögun sinni, miklu greinilegar en nokkrum manni er unnt að teikna þá, eins og skýrt má sjá af sýnishornunum. Það er meira að segja unnt að flysja þau hvort frá öðru með varkárni, og er þá hvert blað jafnþunnt og skrifpappír. Hins vegar liggja oft heilar hrúgur af þeim fergðar saman í litlum flögumolum, en öll liggja blöðin lárétt. Að ofan eru þau öskuhvít,[4] en svört á neðra borði. Á viðnum, sem surtarbrandurinn er gerður af, er annars mikill munur, jafnvel þótt efnið sé hreint, óblandað og þétt í sér. Viðarflísar, trefjar og mergur með stórum og smáum kvistum og greinabútum sjást þar hvarvetna, svo greinilegt er að ýmsar viðartegundir hafa hrúgazt hér saman og fergzt í sameiginlegt lag, rétt eins og blöðin eru einnig af ýmsu tæi. En slíkt hefur hvergi hitzt á landinu nema aðeins hér.Af þessum athugunum dró Eggert þá megin-niðurstöðu að surtarbrandurinn væri ekki einfaldlega kolaður rekaviður, eins og fyrr var talið, heldur leifar af fornum skógi sem vaxið hefði á Íslandi. En auðvitað gat hann ekki, út frá lagi laufa þessara fjögurra trjátegunda, með nokkru móti giskað á tengsl þeirra við ameríska flóru – það kom seinna.

Surtarbrandsgil er náttúruvætti í landi Brjánslækjar á Barðarströnd í Vesturbyggð.
- ^ Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar um ferðir þeirra á Íslandi árin1752–1757, Kaupmannahöfn 1772. Á Íslensku í þýðingu Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum 1942, 2. útg. Bókaútgáfan Örn & Örlygur 1975.
- ^ Vísar til efnisgreina og blaðsíðutals í útgáfu Ferðabókarinnar frá 1975.
- ^ Norræn lengdareining í notkun á undan metrakerfnu: þumlungur (tomma) = 1/12 fet = 2,61 cm; lína = 1/12 af þumlingi.
- ^ Hvíti liturinn er barnamold (kísilgúr). Sviðsmynd gæti verið: lækur liðast um skóglendi og ber með sér lauf og kísilþörunga í tjörn þar sem framburðurinn fellur til botns.
- ^ Míósen-tímabilið telst spanna aldurinn frá 23 til 5,3 milljónum ára og surtarbrandurinn við Brjánslæk er um 12 m.á. Elstu bergmyndanir á Íslandi eru um 16 m.á.
- ^ Friðgeir Grímsson 2007. The Miocene Floras of Iceland. Doktorsritgerð, Háskóla Íslands.
- Lovísa Ásbjörnsdóttir. Birt með góðfúsulegu leyfi.