Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Ef Ísland vantar peninga af hverju framleiðum við þá bara ekki peninga?

Gylfi Magnússon

Þetta er góð spurning enda hafa margir velt þessu fyrir sér.

Skýringin á því að þetta kemur að engu gagni felst í því að peningar eru í sjálfu sér gagnslausir, það er til dæmis hvorki hægt að borða þá né nota þá sem skjólfatnað. Þeir þykja engu að síður verðmætir vegna þess að það er hægt að kaupa nytsama hluti fyrir þá.

Peningar eru í sjálfu sér gagnslausir, það er til dæmis hvorki hægt að borða þá né nota þá sem skjólfatnað. Þeir þykja engu að síður verðmætir vegna þess að það er hægt að kaupa nytsama hluti fyrir þá.

Ef ríkið lætur prenta meira af peningum býr það ekki til nein verðmæti. Það verða bara til fleiri pappírssnifsi og myntir sem hægt er að nota til að kaupa þau raunverulegu verðmæti sem framleidd eru af íbúum landsins. Afleiðingin verður líklega einkum sú að það þarf meira af peningum til að kaupa hvern einstakan hlut en áður. Það verður hins vegar ekki til neitt meira af hlutum og þjónustu en áður og því verður ekki hægt að kaupa neitt meira en áður.

Afleiðingin af aukinni peningaprentun verður því einkum sú að meira þarf af peningum en áður til að kaupa það sama. Með öðrum orðum, verð á vörum og þjónustu hefur hækkað. Það köllum við auðvitað verðbólgu.

Mynd:

Höfundur

Gylfi Magnússon

prófessor í hagfræði við HÍ

Útgáfudagur

1.7.2002

Spyrjandi

Lilja Kristinsdóttir

Tilvísun

Gylfi Magnússon. „Ef Ísland vantar peninga af hverju framleiðum við þá bara ekki peninga? “ Vísindavefurinn, 1. júlí 2002. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2547.

Gylfi Magnússon. (2002, 1. júlí). Ef Ísland vantar peninga af hverju framleiðum við þá bara ekki peninga? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2547

Gylfi Magnússon. „Ef Ísland vantar peninga af hverju framleiðum við þá bara ekki peninga? “ Vísindavefurinn. 1. júl. 2002. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2547>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...