Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvernig er trapisa skilgreind?

ÞV

Trapisa eða hálfsamsíðungur er ferhyrningur þar sem tvær mótlægar hliðar eru samsíða. Trapisa heitir á ensku "trapezoid" eða "trapezium".

Trapisa.

Í þessu felst að trapisa er ein tegund ferhyrninga (quadrangles) en þeir eru rúmmyndir sem eru saman settar úr fjórum línustrikum sem tengjast saman í endapunktum sínum en þeir eru um leið hornpunktar ferhyrningsins.

Lít má á samsíðung (parallelogram) sem eina tegund af trapisum: Í samsíðungi eru bæði pörin af mótlægum hliðum innbyrðis samsíða.

Rétthyrningur (rectangle) er ein tegund samsíðunga; í honum eru öll hornin rétt eða 90°.

Ferningur (square) er rétthyrningur þar sem allar hliðar eru jafnlangar. Segja má að hann sé einfaldasti ferhyrningurinn enda þarf aðeins eina tölu til að lýsa honum, það er að segja lengd hliðarinnar.

Mynd:

Höfundur

Þorsteinn Vilhjálmsson

prófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011

Útgáfudagur

15.1.2004

Spyrjandi

Sigríður F. Halldórsdóttir

Tilvísun

ÞV. „Hvernig er trapisa skilgreind?“ Vísindavefurinn, 15. janúar 2004, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=3950.

ÞV. (2004, 15. janúar). Hvernig er trapisa skilgreind? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3950

ÞV. „Hvernig er trapisa skilgreind?“ Vísindavefurinn. 15. jan. 2004. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3950>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...