Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver er stærsti skógur Kanada?

Jón Már Halldórsson

Það getur verið erfitt að greina einn skóg frá öðrum á miklum skógarsvæðum, líkt og fyrirfinnast í Kanada. Það má því kannski segja að hinn víðáttumikli barrskógur sem er nánast samfeldur stranda á milli, sé langstærsti skógur landsins!

Mynd af Kanada tekin úr gervitungli.

Skógarþekja Kanada er um 3,46 milljón ferkílómetrar eða tæplega 40% af flatarmáli landsins sem er næst stærsta ríki heims. Skógar Kanada eru um 8,5% af flatarmáli skóga heimsins. Af þessu víðáttumikla skóglendi eru um 300 þúsund ferkílómetra svæði friðað. Yfir 90% skóglendis í Kanada er í eigu fylkja eða ríkisins.

Með réttu má segja að barrskógar Kanada séu þriðja stærsta skóglendi í heimi á eftir rússneska barrskógabeltinu og Amason-regnskógum Suður-Ameríku.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

9.2.2009

Síðast uppfært

28.5.2024

Spyrjandi

Kári Benónýsson, f. 1995

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hver er stærsti skógur Kanada?“ Vísindavefurinn, 9. febrúar 2009, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=50624.

Jón Már Halldórsson. (2009, 9. febrúar). Hver er stærsti skógur Kanada? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=50624

Jón Már Halldórsson. „Hver er stærsti skógur Kanada?“ Vísindavefurinn. 9. feb. 2009. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=50624>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...