Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvers vegna ber síður nærfatnaður heitið föðurland?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Nafnorðið föðurland í merkingunni ‛síðar nærbuxur, einkum úr ull’ er sennilega ekki gamalt í málinu og enga skýringu hef ég fundið, enn sem komið er, á því hvers vegna þetta heiti festist við þær. Elstu dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru frá síðari hluta 20. aldar og segja ekkert um upprunann.

Merkingin ‛ættjörð’ er mun eldri. Sennilega hafa síðu nærbuxurnar fengið þetta heiti eftir að farið var að flytja inn nærfatnað úr öðru efni sem hefur þótt fínna. Þær innlendu úr ullinni hafa þá ef til vill þótt kauðalegar og gamaldags miðað við þær erlendu úr bómull eða öðru fínlegra efni.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

25.6.2010

Spyrjandi

Tinna Berg

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvers vegna ber síður nærfatnaður heitið föðurland?“ Vísindavefurinn, 25. júní 2010, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=56026.

Guðrún Kvaran. (2010, 25. júní). Hvers vegna ber síður nærfatnaður heitið föðurland? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=56026

Guðrún Kvaran. „Hvers vegna ber síður nærfatnaður heitið föðurland?“ Vísindavefurinn. 25. jún. 2010. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=56026>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...