Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvaðan koma hvítu blettirnir á nöglunum?

MBS

Hvítir blettir á nöglum eru kalkútfellingar í nöglinni sem gefa til kynna að naglmassinn hafi orðið fyrir einhverju hnjaski þegar nöglin var að myndast.

Eins og kemur fram í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Hvað eru neglur?, myndast neglur þegar yfirborðsfrumur naglmassa ummyndast í naglfrumur. Þessar frumur myndast í naglrótinni undir naglbandinu og ýtast svo smám saman fram á við.

Hvítir blettir eru algengari á tánöglum þar sem tærnar verða oftar fyrir minni háttar áverkum. Mikið af hvítum blettum á tánöglum getur til dæmis bent til þess að skór passi illa.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Frekari upplýsingar má finna með því að nota leitarvél Vísindavefsins eða smella á efnisorðin hér fyrir neðan.

Höfundur

Margrét Björk Sigurðardóttir

líffræðingur

Útgáfudagur

9.5.2006

Spyrjandi

Alexander Freyr Sveinsson, f. 1994

Tilvísun

MBS. „Hvaðan koma hvítu blettirnir á nöglunum?“ Vísindavefurinn, 9. maí 2006. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=5878.

MBS. (2006, 9. maí). Hvaðan koma hvítu blettirnir á nöglunum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=5878

MBS. „Hvaðan koma hvítu blettirnir á nöglunum?“ Vísindavefurinn. 9. maí. 2006. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=5878>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvaðan koma hvítu blettirnir á nöglunum?
Hvítir blettir á nöglum eru kalkútfellingar í nöglinni sem gefa til kynna að naglmassinn hafi orðið fyrir einhverju hnjaski þegar nöglin var að myndast.

Eins og kemur fram í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Hvað eru neglur?, myndast neglur þegar yfirborðsfrumur naglmassa ummyndast í naglfrumur. Þessar frumur myndast í naglrótinni undir naglbandinu og ýtast svo smám saman fram á við.

Hvítir blettir eru algengari á tánöglum þar sem tærnar verða oftar fyrir minni háttar áverkum. Mikið af hvítum blettum á tánöglum getur til dæmis bent til þess að skór passi illa.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Frekari upplýsingar má finna með því að nota leitarvél Vísindavefsins eða smella á efnisorðin hér fyrir neðan....