Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað merkir: Margur verður af aurum api?

Guðrún Kvaran

Margur verður af aurum api er ljóðlína í Hávamálum sem teljast eitt af Eddukvæðum. Þau voru skrifuð niður á 13. öld en höfðu lifað lengi í munnmælum. Fyrri hluti 75. erindis er þannig:
Veita hinn

er vætki veit,

margur verður af aurum api.

veit-a: veit ekki, -a er neitandi viðskeyti

vætki: ekkert

api: notað um jötna í niðrandi skyni

Margur verður af aurum api er ljóðlína í Hávamálum. Hún merkir að margur maðurinn, sem auðgast hefur, hegðar sér oft heimskulega. Orðið api er notað um jötna í niðrandi skyni.

Merkingin er að margur maðurinn, sem auðgast hefur, hegðar sér oft heimskulega. Er það vel þekkt enn þann dag í dag.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

10.5.2013

Spyrjandi

K.L.

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað merkir: Margur verður af aurum api?“ Vísindavefurinn, 10. maí 2013. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=64486.

Guðrún Kvaran. (2013, 10. maí). Hvað merkir: Margur verður af aurum api? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=64486

Guðrún Kvaran. „Hvað merkir: Margur verður af aurum api?“ Vísindavefurinn. 10. maí. 2013. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=64486>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...