Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Er það rétt að sálfræðingar megi ekki auglýsa sig? Ef svo er, af hverju ekki?
Ekki er rétt að sálfræðingum sé alfarið meinað að auglýsa þjónustu sína, en þeim eru þó settar þröngar skorður um auglýsingar í núgildandi lögum.
Sálfræðingar sem veita klíníska þjónustu starfa samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn sem sett voru árið 2012. Í 24. grein laganna er fjallað um auglýsingar og kynningu á heilbrigðisþjónustu en þar segir: „Við kynningu heilbrigðisþjónustu og auglýsingar skal ávallt gætt málefnalegra sjónarmiða og fyllstu ábyrgðar, nákvæmni og sanngirni.“ Jafnframt er þar kveðið á um að heilbrigðisráðherra geti sett reglugerð sem fjalli nánar um auglýsingar heilbrigðisstarfsmanna. Slík reglugerð hefur þó ekki verið sett enn.
Um starfsemi sálfræðinga gilda einnig lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Í 13. grein þeirra laga segir: „Óheimilt er að hafast nokkuð það að sem brýtur í bága við góða viðskiptahætti í atvinnustarfsemi eins og þeir eru tíðkaðir eða eitthvað það sem óhæfilegt er gagnvart hagsmunum neytenda.“ Í athugasemdum með frumvarpi um heilbrigðisstarfsmenn er þess sérstaklega getið að þessi lög gildi um heilbrigðisstarfsmenn.
Núgildandi lög leyfa þannig auglýsingar og kynningu sálfræðinga sem veita klíníska þjónustu. Slíkar auglýsingar verða þó að vera málefnalegar og settar fram af ábyrgð og mega ekki bregða út af því sem hóflegt þykir af heilbrigðisstarfsfólki. Þannig er væntanlega ólöglegt að lofa tilteknum árangri af meðferð, vekja miklar væntingar eða draga úr að sálfræðileg meðferð geti tekið tíma, en vel er þekkt að öll sálfræðileg meðferð er bundin nokkurri óvissu um árangur og getur tekið tíma að skila árangri.
Þessar takmarkanir eru byggðar á því að heilbrigðisþjónusta – sem klínískir sálfræðingar teljast veita – er oft talin frábrugðin margs konar annarri þjónustu sem veitt er í samfélaginu. Heilbrigðisþjónusta er nýtt af fólki sem á við ýmis konar vandamál að stríða. Hjá skjólstæðingum sálfræðinga geta vandamálin verið alvarleg og mjög persónuleg. Margir leita sálfræðiaðstoðar þegar erfiðleikar steðja að og þá getur dómgreind fólks verið skert. Það gerir fólki erfiðar að sjá í gegnum gylliboð og loforð sem geta birst í auglýsingum. Takmörkunum á auglýsingum sálfræðinga – og raunar allra heilbrigðisstétta – er þannig ætlað að verja skjólstæðinga sálfræðinga gagnvart óraunhæfum væntingum. Einnig má líta svo á að takmarkanir af þessu tagi verji fagstéttina í heild sinni og stuðli að öguðum vinnubrögðum, því minni líkur séu á að tiltekinn hópur beiti gylliboðum og lakari meðferðarúrræðum sem aðrir vilja ekki gera.
Heimildir:
Guðmundur D. Haraldsson. „Er það rétt að sálfræðingar megi ekki auglýsa sig?“ Vísindavefurinn, 21. maí 2025, sótt 14. júní 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=66576.
Guðmundur D. Haraldsson. (2025, 21. maí). Er það rétt að sálfræðingar megi ekki auglýsa sig? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=66576
Guðmundur D. Haraldsson. „Er það rétt að sálfræðingar megi ekki auglýsa sig?“ Vísindavefurinn. 21. maí. 2025. Vefsíða. 14. jún. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=66576>.