Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Var hægt að tákna tölustafi með rúnaletri?

Þórgunnur Snædal

Rúnir hafa verið notaðar allt frá landnámi Íslands. Þegar fyrstu landnemarnir settust að hérna var nýlega búið að taka í notkun yngra rúnaletrið með 16 stöfum í staðinn fyrir 24 stafa rúnaletur.

Íslensku rúnirnar fylgdu þeim norsku fast eftir allt til loka þjóðveldisins með nokkrum undantekningum þó. Eftir lok þjóðveldisins verður munurinn þó smám saman meiri og séríslenskar rúnamyndir verða algengari.

Þessar rúnir voru í norska/íslenska rúnaletrinu á 10. og 11. öld. Síðasta rúnin, y, er aðeins þekkt í einni ristu á Íslandi.

Svo virðist sem tölustafir hafi ekki verið notaðir í þeim ristum sem eru þekktar. Þetta skýrist af því að á miðöldum tíðkaðist ekki að setja dánarár á legsteina. Ef tölur voru notaðar á ristum voru þær skrifaðar upp en ekki táknaðar með tölustaf.

Heimildir:

  • Þórgunnur Snædal. 2011. „Rúnum ristir gripir frá Alþingisreitnum og Urriðakoti.“ Árbók Hins íslenzka fornleifafélags, bls. 167-185. Hið íslenzka fornleifafélag, Reykjavík.
  • Þórgunnur Snædal. 2003. „Rúnaristur á Íslandi.“ Árbók Hins íslenzka fornleifafélags, bls. 5-68. Hið íslenzka fornleifafélag, Reykjavík.

Mynd:

  • Þórgunnur Snædal. 2011. „Rúnum ristir gripir frá Alþingisreitnum og Urriðakoti.“ Árbók Hins íslenzka fornleifafélags, bls. 178. Hið íslenzka fornleifafélag, Reykjavík. Myndin er lítillega aðlöguð af ritstjórn Vísindavefsins.

Upphaflegar spurningar voru svona:

  • Hvers konar tölustafi rituðu víkingar sem notuðu rúnir?
  • Eru til tölustafir í rúnarformi? Eins og rúnir merkja stafi, bara tölustafi?

Höfundur

Þórgunnur Snædal

rúnafræðingur

Útgáfudagur

28.1.2014

Spyrjandi

Birkir Kristinsson, Silja Jóhannsdóttir

Tilvísun

Þórgunnur Snædal. „Var hægt að tákna tölustafi með rúnaletri?“ Vísindavefurinn, 28. janúar 2014. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=66736.

Þórgunnur Snædal. (2014, 28. janúar). Var hægt að tákna tölustafi með rúnaletri? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=66736

Þórgunnur Snædal. „Var hægt að tákna tölustafi með rúnaletri?“ Vísindavefurinn. 28. jan. 2014. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=66736>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...