Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík

Hver dó fyrstur vegna byssu?

EDS

Það er engin leið að segja til um það hver sá var sem fyrstur dó vegna byssu. Ástæðan er sú að við vitum ekki hvenær fyrst var skotið úr byssu, hvar nákvæmlega það átti sér stað eða hverjir þar voru að verki.

Eins vitum við ekki hvort sá sem fyrstur dó vegna byssu hafi látist vegna þess að byssunni var beint að honum eða hvort það var sá sem átti við byssuna sem dó. Án efa hafa einhverjir orðið fyrir slysum þegar menn voru að prófa sig áfram með fyrstu byssurnar og byssupúðrið og það getur rétt eins verið að fyrsta dauðsfallið vegna þessarar nýju „tækni“ hafi verið óvart.

Það má þó teljast líklegt að sá sem fyrstur dó vegna byssu hafi verið í Kína þar sem fyrstu byssurnar komu líklega fram á sjónarsviðið. Nánar má lesa um það í svari við spurningunni Hvenær var byssan fundin upp? Enn fremur má sjá svar við spurningunni Af hverju eru byssur til?


Þetta svar er í flokknum „bekkirnir spyrja“ þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

5.3.2008

Spyrjandi

Bjarni Elí Jóhannsson

Tilvísun

EDS. „Hver dó fyrstur vegna byssu?“ Vísindavefurinn, 5. mars 2008. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=7171.

EDS. (2008, 5. mars). Hver dó fyrstur vegna byssu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=7171

EDS. „Hver dó fyrstur vegna byssu?“ Vísindavefurinn. 5. mar. 2008. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=7171>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hver dó fyrstur vegna byssu?
Það er engin leið að segja til um það hver sá var sem fyrstur dó vegna byssu. Ástæðan er sú að við vitum ekki hvenær fyrst var skotið úr byssu, hvar nákvæmlega það átti sér stað eða hverjir þar voru að verki.

Eins vitum við ekki hvort sá sem fyrstur dó vegna byssu hafi látist vegna þess að byssunni var beint að honum eða hvort það var sá sem átti við byssuna sem dó. Án efa hafa einhverjir orðið fyrir slysum þegar menn voru að prófa sig áfram með fyrstu byssurnar og byssupúðrið og það getur rétt eins verið að fyrsta dauðsfallið vegna þessarar nýju „tækni“ hafi verið óvart.

Það má þó teljast líklegt að sá sem fyrstur dó vegna byssu hafi verið í Kína þar sem fyrstu byssurnar komu líklega fram á sjónarsviðið. Nánar má lesa um það í svari við spurningunni Hvenær var byssan fundin upp? Enn fremur má sjá svar við spurningunni Af hverju eru byssur til?


Þetta svar er í flokknum „bekkirnir spyrja“ þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....