Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Er til annað sólkerfi?

JGÞ

Já, það er til annað sólkerfi og reyndar allnokkur sem menn vita um með fullri vissu.

Skilgreiningin á sólkerfi er þessi: Sólstjarna með reikistjörnur eða annað af því tagi á braut í kringum sig.

Fram til ársins 1990 var sólkerfið okkar það eina sem vitað var um með fullri vissu. Síðan þá hafa mörg önnur fundist og hægt er að kanna hversu mörg þau eru með því að skoða síðuna The Extrasolar Planets Encyclopaedia. Þegar þetta svar er skrifað eru sólkerfin sem þekkt eru alls 225 en fyrir um tveimur árum síðan voru þau 188, þannig að talan hækkar ört.

Hægt er að lesa meira um önnur sólkerfi í svörum við eftirtöldum spurningum:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

7.3.2008

Spyrjandi

Margrét Björg Arnardóttir, f. 1995

Tilvísun

JGÞ. „Er til annað sólkerfi?“ Vísindavefurinn, 7. mars 2008. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=7201.

JGÞ. (2008, 7. mars). Er til annað sólkerfi? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=7201

JGÞ. „Er til annað sólkerfi?“ Vísindavefurinn. 7. mar. 2008. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=7201>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Er til annað sólkerfi?
Já, það er til annað sólkerfi og reyndar allnokkur sem menn vita um með fullri vissu.

Skilgreiningin á sólkerfi er þessi: Sólstjarna með reikistjörnur eða annað af því tagi á braut í kringum sig.

Fram til ársins 1990 var sólkerfið okkar það eina sem vitað var um með fullri vissu. Síðan þá hafa mörg önnur fundist og hægt er að kanna hversu mörg þau eru með því að skoða síðuna The Extrasolar Planets Encyclopaedia. Þegar þetta svar er skrifað eru sólkerfin sem þekkt eru alls 225 en fyrir um tveimur árum síðan voru þau 188, þannig að talan hækkar ört.

Hægt er að lesa meira um önnur sólkerfi í svörum við eftirtöldum spurningum:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....