Það liggur skipsflak í fjörunni fyrir neðan Fossvogskirkjugarð. Hvaða skip er þetta og hvernig endaði það þarna?Stutta svarið Skipsflakið sem liggur í flæðarmálinu í norðanverðum Fossvogi er af togaranum Óla Garða GK-190. Þar hefur það verið frá árinu 1953, þegar skipið var selt til niðurrifs, eftir að hafa slitnað upp af ytri bryggjunni í Hafnarfirði í miklu hvassviðri í október 1953 og strandað á skeri utan við Dysjarfjöru í Garðahverfi. Lengra svar Samkvæmt upplýsingum úr fornleifaskrá fyrir Hlíðar - borgarhluta 3 í Reykjavík þá er skipsflakið í flæðarmálinu innarlega í norðanverðum Fossvogi af togaranum Óla Garða GK-190. Skip þetta mun hafa verið 49. togarinn í eigu Íslendinga, smíðaður í Lehe í Þýskalandi árið 1921 eða 1922 – heimildum ber ekki saman. Togarinn var upphaflega nefndur Otur RE-245 og gerður út af Otur h.f. í Reykjavík en seldur til Hrafna Flóka h.f. í Hafnarfirði árið 1938 og fékk þá heitið Óli Garða.[1]

Skipsflakið í flæðarmálinu innarlega í norðanverðum Fossvogi er af togaranum Óla Garða GK-190. Hann slitnaði upp af ytri bryggjunni í Hafnarfirði í miklu hvassvirði 1953 og strandaði á skeri utan við Dysjarfjöru í Garðahverfi. Tveimur árum síðar var Óli Garða seldur til niðurrifs og endaði í fjörunni í Fossvogi.
Óli Garða var á leið til Englands, er áreksturinn varð. Var skipið statt alllangt undan Aberdeen, er áreksturinn varð milli þess og 4000 tonna flutningaskips. Flutningaskipið sökk. Óli Garða varð fyrir miklum skemmdum, en komst þó af eigin rammleik til hafnar. Ekkert tjón varð þó á skipshöfn Óla Garða, en ekki er fullkunnugt um, hvort tjón varð á skipshöfn flutningaskipsins.Enn voru sagðar fréttir af Óla Garða 1944 þegar áhöfnin kom togaranum Þorfinni til bjargar um 180 mílur út af Suðureyjum. Skipin tvö höfðu verið í samfloti á leið til Englands þegar Þorfinnur bilaði og varð ósjálfbjarga. Í Alþýðublaðinu 8. mars 1944 lýsir Jón Stefánsson skipstjóri Óla Garða atburðunum svona:
Veður var mjög slæmt, er Þorfinnur bilaði eða um 8 vindstig, en okkur tókst þó að koma vírum á hann. Veður var enn slæmt í heilan sólarhring, en síðan batnaði veðrið. Höfðum við skipið í eftirdragi í þrjá sólahringa, en komum því svo í höfn í Englandi og höfðum við þá farið með skipið um 400 mílna leið.Næstu árin er fátt fréttnæmt af Óla Garða fyrr en í október 1953. Þá er greint frá því í dagblöðum að togarinn hafi slitnað upp af ytri bryggjunni í Hafnarfirði í miklu hvassviðri og strandað á skeri utan við Dysjarfjöru í Garðahverfi. Á þessum tíma hafið Óli Garða legið í um tvö ár við bryggju. Um mánuði síðar má lesa frétt í Vísi þess efnis að Óli Garða hafi verið seldur til niðurrifs og sé nú uppi í fjöru í Fossvogi. Í dag, meira en sjö áratugum eftir að togarinn var fluttur í Fossvoginn til niðurrifs, má enn sjá leifar hans þar. Tilvísun:
- ^ Einhver kynnu að halda rétt heiti væri Óli Garðar og r-ið hafi gleymst hér. Svo er þó ekki samanber frétt í Alþýðublaðinu 30. desember 1938: „Skipið skiptir um nafn og heitir nú „Óli Garða“. Er það látið heita í höfuðið á öldruðum sjómanni í Hafnarfirði, sem lengi var í Görðum á Álftanesi, kunnur formaður, afburða aflamaður og hinn mesti sjósóknar."
- Anna Lísa Guðmundsdóttir og Margrét Björk Magnúsdóttir. (2024). Fornleifaskrá. Borgarhluti 3 - Hlíðar. Borgarsögusafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 224, bls. 105. https://skraning.minjastofnun.is/Verkefni_2645.pdf
- B.v. Óli Garða bjargar breskum flugbát. (1940, 21. maí). Morgunblaðið, bls. 3. https://timarit.is/page/1241191#page/n2/mode/2up
- Bv. Óli Garða rekst á fluttningaskip, sem sökk við áreksturinn. (1943, 30. desember). Morgunblaðið, bls. 12. https://timarit.is/page/1250550#page/n11/mode/2up
- Helgi Laxdal. (2019). Fyrstu togararnir í eigu Íslendinga. Sjómannablaðið Víkingur, 81(4), bls. 18. https://timarit.is/page/7677332#page/n17/mode/2up
- Innan borðs og utan. (1940, 1. júní). Sjómaðurinn, bls. 37. https://timarit.is/page/5210245#page/n42/mode/2up
- Í fáum orðum. (1940, 24, maí). Nýtt land, bls. 2. https://timarit.is/page/4649305#page/n1/mode/2up
- Óli Garða rak á land. (1953, 20. október). Þjóðviljinn, bls. 3. https://timarit.is/page/2765073#page/n1/mode/2up
- „Óli Garða“ seldur til niðurrifs. (1953, 19. nóvember). Vísir, bls. 8. https://timarit.is/page/1178099#page/n7/mode/2up
- Óli Garða strandaði á Dysjabryggju í Hafnarf. (1953, 20. október). Tíminn, bls. 2. https://timarit.is/page/1019233#page/n1/mode/2up
- Skúli Magnússon. (1985, 1. desember). Sjóslysaannáll Keflavíkur. Faxi, 45(8): bls. 367. https://timarit.is/page/5186048#page/n53/mode/2up
- Söguleg ferð Óla Garða: Brezkum flugbát bjargað og tveimur skipum í hættu. (1940, 21. maí). Alþýðublaðið, bls. 1. https://timarit.is/page/1054182#page/n0/mode/2up
- Togarinn Otur seldur til Hafnarfjarðar og heitir nú „Óli Garða“. (1938, 30. desember). Alþýðublaðið, bls. 1. https://timarit.is/page/989711?iabr=on#page/n0/mode/2up
- Togarinn Þorfinnur ósjálfbjarga á leið til Englands. (1944, 8. mars). Alþýðublaðið, bls. 2. https://timarit.is/page/1069788#page/n1/mode/2up
- Yfirlitsmynd: JGÞ: 17.1.2026.
- Mynd af flaki: JGÞ: 17.1.2026.
- Mynd af Óla Garða: Höfundur óþekktur. https://solir.blog.is/album/togarar/image/1001516/
Hvað vitið þið um sögu skipsins sem nú er skipsflak í Fossvogi?
