Sólin Sólin Rís 02:57 • sest 24:00 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 02:56 • Sest 05:01 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:16 • Síðdegis: 20:35 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:17 • Síðdegis: 14:16 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Af hverju heitir gróft bygg bankabygg og hvað er þetta „banka“?

Guðrún Kvaran

Spurning Magnúsar hljóðaði svona:
Mig langar að vita hvað er bankabygg, og af hverju heitir það bankabygg?

Orðið bankabygg er tökuorð úr dönsku sem heiti á grófu byggi. Það þekkist í íslensku máli að minnsta kosti frá miðri 19. öld, samanber til dæmi timarit.is.

Samkvæmt Ordbog over det danske sprog, sem nálgast má á vefnum ordnet.dk, er með bankebyg átt við afhýdd, gróf bygggrjón en sögnin banke í dönsku merkir að ‘slá á eitthvað með höndum eða verkfæri’. Þá sögn hafa Íslendingar einnig tekið að láni úr dönsku sem banka ‘berja, slá’.

Bæta má við að orðasambandið vissi ég ekki bankabygg þekktist vel þegar ég var að alast upp um miðja 20. öld, sagt þegar einhver var ánægður með að hafa haft rétt fyrir sér. Til eru fleiri afbrigði af orðasambandinu.

Heimild og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

11.6.2025

Spyrjandi

Matthías Pétursson, Magnús

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju heitir gróft bygg bankabygg og hvað er þetta „banka“?“ Vísindavefurinn, 11. júní 2025, sótt 14. júní 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=87640.

Guðrún Kvaran. (2025, 11. júní). Af hverju heitir gróft bygg bankabygg og hvað er þetta „banka“? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87640

Guðrún Kvaran. „Af hverju heitir gróft bygg bankabygg og hvað er þetta „banka“?“ Vísindavefurinn. 11. jún. 2025. Vefsíða. 14. jún. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87640>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...