Öll spurningin hljóðaði svona:
Er hægt að koma í veg fyrir að lúpína vaxi síðar meir á ákveðnu svæði með að slá hana nokkur skipti í röð á því svæði?
Alaskalúpína (Lupinus nootkatensis) er viðkvæm fyrir slætti á hásumri. Tilraunir voru gerðar fyrr á árum með að slá lúpínuna á mismunandi tímum frá vori til h...
Slagari er tökuorð í íslensku sennilega úr dönsku slager sem aftur tók orðið að láni úr þýsku Schlager. Elsta dæmi í ritmálssafni Orðabókar Háskólans er frá 1944 og er orðið haft í gæsalöppum sem oftast bendir til að um aðkomuorð sé að ræða sem ekki er talið fullgildur gegn í málinu.
Orðið slagari varð fyrst til...
Já stundum er það heilanum að kenna en langalgengast er að hjartað hætti að slá vegna hjartsláttartruflana sem orsakast annað hvort af sjúkdómi í hjartavöðvanum eða leiðslukerfi hjartans.
Hjartað hefur sitt eigið rafkerfi sem stýrir hjartslættinum. Sérhæfðar frumur í hjartanu gefa frá sér rafboð sem stýra tak...
Á flestum lyklaborðum eru tveir vendihnappar (e. enter keys), litaðir rauðir á myndinni hér að neðan. Staðsetning þeirra er valin með það í huga að notandinn eigi auðvelt með að ná til þeirra, enda eru þeir nokkuð mikilvægir.
Ætlast er til að sá vinstri sé notaður þegar verið er að slá inn texta, eins og þe...
Orðatiltækið að slá á þráðinn 'hringja í e-n' er ungt í íslensku máli. Það er fengið að láni úr dönsku slå på tråden í sömu merkingu. Þráður er þarna í merkingunni 'taug, strengur', samanber símaþráður.
Orðatiltækið að slá á þráðinn> merkir að 'hringa í einhvern'.
Hægt er að lesa meira um málfar sem tengist ...
Orðasambandið að kasta tólfunum er notað um eitthvað sem keyrir úr hófi. Það er þekkt að minnsta kosti frá 18. öld samkvæmt heimildasafni Orðabókar Háskólans. Yngra er sambandið að slá tólfunum í sömu merkingu en það er kunnugt frá 19. öld. Líkingin er sennilegast komin frá teningaspili þar sem notaðir eru tveir t...
Píanó getur flokkast sem hljómborðshljóðfæri, ásláttarhljóðfæri og strengjahljóðfæri. Það hefur strengi sem slegið er á með hömrum, en hömrunum er stjórnað af hljómborði. Píanókeikarinn spilar því í raun á hljómborð. Píanó hafa yfirleitt 88 nótur, 52 hvítar og 36 svartar. Stundum eru nóturnar í öðrum lit. Strengir...
Orðasambandið að velgja einhverjum undir uggum er notað í merkingunni ‛þjarma að einhverjum, láta einhvern finna fyrir valdi sínu’. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans um orðtakið er úr Skírni frá 1839:Áli jarl hafði í hyggju að velgja Tirkjum undir uggum.
Halldór Halldórsson getur sér þess til í ...
Samkvæmt því sem næst verður komist er viðurkennt met í vöku án aðstoðar lyfja 264 klukkutímar eða 11 sólahringar. Þetta gerðist árið 1964 og þar átti í hlut 17 ára gamall bandarískur piltur að nafni Randy Gardner. Þessi langa vaka var í tengslum við vísindaverkefni sem hann vann að en hann vildi slá fyrra heimsme...
Samkvæmt vefmælingu Modernusar voru tíu vinsælustu svör júnímánaðar á Vísindavefnum árið 2015 þessi hér:
Er það rétt að trú sé einkenni heilaskaða eða stafi af heilasjúkdómi?
Er það rétt að Þorgeir Ljósvetningagoði hafi hent goðum í Goðafoss?
Hvaða hött er átt við þegar eitthvað er 'út í hött'?
Hvað hefði Le...
Athugasemd ritstjórnar: Glöggur lesandi benti okkur á hvernig fá má fram íslenskar gæsalappir í Macintosh OS X. Fyrri gæsalappirnar („) fást með því að halda inni ALT-hnappi lyklaborðsins og ýta um leið á 'Ð'. Hinar seinni (“) má fá með því að gera slíkt hið sama, en halda einnig inni skiptihnappi (e. shift).
S...
Í svari við spurningunni Hvernig get ég fundið út hvar fólk er jarðað? er bent á vefsíðuna Gardur.is. Þar er hægt að slá inn upplýsingar um látna einstaklinga og finna hvar þeir eru grafnir. Yfirleitt er bæði tiltekið í hvaða garði menn liggja og hvar í garðinum leiði þeirra er.
Hægt er að finna upplýsingar um ...
Spurningin í fullri lengd er á þessa leið: Af hverju finnst orðið ritmálsskrá ekki í Orðabók Háskólans þó að það sé notað á titilsíðu orðabókarinnar?Orðið ritmálsskrá var búið til á Orðabók Háskólans til þess að lýsa ákveðinni skrá sem stofnunin lét vinna að. Ábendingin er góð, auðvitað ætti orðið að vera í safni ...
Það er ekki hægt að vita nákvæmlega hvenær Hekla gýs næst.
Þegar Hekla gaus árið 1947 töldu menn að hún gysi reglulega á 100 ára fresti. Næst hefði hún þess vegna átt að gjósa nálægt 2045.
Þetta gekk ekki eftir og síðan hefur Hekla gosið 1970, 1980, 1991 og 2000. Miðað við það ætti hún að gjósa næst nálægt 2...
Við ætlum að svara þessari spurningu einfaldlega með því að benda spyrjanda á tvær slóðir þar sem hægt er að fletta upp grískum orðum með því að slá inn ensk heiti. Eitur á ensku er poison.
Hjá English-Greek Word Search er hægt að fá leitarniðustöður úr nokkrum orðabókum og hér sést niðurstaða þegar orðið eitur...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!