Sólin Sólin Rís 06:21 • sest 20:40 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 09:56 • Síðdegis: 22:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:56 • Síðdegis: 15:51 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Eru flugur í híbýlum bara vegna óþrifnaðar?

Jón Már Halldórsson

Í stuttu máli er svarið nei, ekki er hægt að tengja flugnagang í húsum sjálfkrafa við óþrifnað. Algengast er að flugur berist inn á heimili fólks um opna glugga eða dyr en þær geta einnig komist þangað með öðrum hætti, til dæmis með matvörum eða hlutum, alveg óháð aðstæðum á heimili fólks. Eðli málsins samkvæmt er líklegra að flugna verði vart í híbýlum yfir sumartímann en húsflugur í vetrardvala geta þó kviknað til lífsins innanhúss allan ársins hring.

Lykt, svo sem af matvælum, getur laðað að sér flugur en lykt er ekki það sama og óþrifnaður. Óvarinn matur eða matarleifar, ávextir, grænmeti, rusl, lífrænn úrgangur eða tómar drykkjarumbúðir eru allt dæmi um eitthvað sem getur laðað að sér flugur. Einnig sækja ákveðnar tegundir flugna í pottaplöntur og reyna þá iðulega að verpa í pottamoldina.

Óþrifnaður skiptir þó sannalega miklu máli ef honum fylgir gott framboð eða aðgengi af fæðu sem flugur sækjast eftir. Þetta getur verið óvarinn matur eða sorp, eða hvers konar aðstæður sem henta vel fyrir flugurnar til að fjölga sér. Góð umgengni og hreinlæti skiptir því máli ef menn vilja fækka flugum á heimilinu.

Óvarin matvæli geta laðað að sér flugur.

En það er þó ekki svo að allar flugur sem berast inn í hús sæki í það sama. Á vef Náttúrufræðistofunnar er umfjöllun um nokkrar tegundir af húsflugnaætt. Þar kemur til dæmis fram að húsfluga (Musca domestica) og gistifluga (Helina annosa), sem eru ekki svo ólíkar í útlit og þekkjast báðar í híbýlum fólk, hafi mjög ólíkt hátterni. Gistiflugan leitar ekki í mat eða áreitir íbúa en sækir í gluggana og heldur sig gjarnan þar. Húsflugan forðast hins vegar glugga og opnar dyr en leitar í mat og stundum í andlit fólks.

Heimildir og myndir:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

8.4.2026

Spyrjandi

Örn

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Eru flugur í híbýlum bara vegna óþrifnaðar?“ Vísindavefurinn, 8. apríl 2026, sótt 8. apríl 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88095.

Jón Már Halldórsson. (2026, 8. apríl). Eru flugur í híbýlum bara vegna óþrifnaðar? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88095

Jón Már Halldórsson. „Eru flugur í híbýlum bara vegna óþrifnaðar?“ Vísindavefurinn. 8. apr. 2026. Vefsíða. 8. apr. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88095>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Eru flugur í híbýlum bara vegna óþrifnaðar?
Í stuttu máli er svarið nei, ekki er hægt að tengja flugnagang í húsum sjálfkrafa við óþrifnað. Algengast er að flugur berist inn á heimili fólks um opna glugga eða dyr en þær geta einnig komist þangað með öðrum hætti, til dæmis með matvörum eða hlutum, alveg óháð aðstæðum á heimili fólks. Eðli málsins samkvæmt er líklegra að flugna verði vart í híbýlum yfir sumartímann en húsflugur í vetrardvala geta þó kviknað til lífsins innanhúss allan ársins hring.

Lykt, svo sem af matvælum, getur laðað að sér flugur en lykt er ekki það sama og óþrifnaður. Óvarinn matur eða matarleifar, ávextir, grænmeti, rusl, lífrænn úrgangur eða tómar drykkjarumbúðir eru allt dæmi um eitthvað sem getur laðað að sér flugur. Einnig sækja ákveðnar tegundir flugna í pottaplöntur og reyna þá iðulega að verpa í pottamoldina.

Óþrifnaður skiptir þó sannalega miklu máli ef honum fylgir gott framboð eða aðgengi af fæðu sem flugur sækjast eftir. Þetta getur verið óvarinn matur eða sorp, eða hvers konar aðstæður sem henta vel fyrir flugurnar til að fjölga sér. Góð umgengni og hreinlæti skiptir því máli ef menn vilja fækka flugum á heimilinu.

Óvarin matvæli geta laðað að sér flugur.

Óvarin matvæli geta laðað að sér flugur.

En það er þó ekki svo að allar flugur sem berast inn í hús sæki í það sama. Á vef Náttúrufræðistofunnar er umfjöllun um nokkrar tegundir af húsflugnaætt. Þar kemur til dæmis fram að húsfluga (Musca domestica) og gistifluga (Helina annosa), sem eru ekki svo ólíkar í útlit og þekkjast báðar í híbýlum fólk, hafi mjög ólíkt hátterni. Gistiflugan leitar ekki í mat eða áreitir íbúa en sækir í gluggana og heldur sig gjarnan þar. Húsflugan forðast hins vegar glugga og opnar dyr en leitar í mat og stundum í andlit fólks.

Heimildir og myndir:...